| Hvað gerði Guð í málinu? |
|
|
|
|
Allt í heiminum er komið í óreiðu. Ástæðan er syndin, hið illa, sjálfselska okkar. Allt er gegnumsýrt af þessu ástandi. Við erum aðskilin frá Guði. Hvað getum við gert í málinu? Svarið er: Ekkert! Við getum ekki fjarlægt hindrunina, sem skilur okkur frá Guði. Við getum ekki náð til Guð af eigin rammleik, sama hvað við reynum. Biblían notar nokkrar mjög lýsandi myndir til þess að lýsa stöðu okkar. Við erum fangar í djúpri dýflissu og komumst ekki út. Við erum sokkin niður í leðjuna, í glötunargröfina, og getum ekki bjargað okkur. Því meir sem við berjumst um þeim mun verra verður ástandið. Við höfum villst, eins og sá sem gengur áfram án nokkurs tilgangs í völundarhúsi og villist sífellt lengra frá útganginum. Við erum að drukkna og kunnum ekki að synda. Það gagnar ekkert að vera heiðarlegur eða trúrækinn og taka þátt í trúarathöfnum. Hvert er þá svarið? Það verður að bjarga okkur. Við þurfum á einhverjum að halda, sem getur opnað lás dýflissunnar og opnað fyrir okkur, sem getur dregið okkur upp úr leðjunni, sem getur fundið okkur og farið með okkur heim, einhvern sem getur bjargað okkur frá drukknun. Það er tilgangslaust að sýna okkur aðeins hvað við ættum að gera, hvað þá heldur að segja okkur það. Við þurfum á björgunarmanni að halda. Guð hefur í kærleika sínum ekki skilið okkur eftir svo að við berðumst tilgangslausri baráttu upp á eigin spýtur. Hann hefur gert eitthvað í málinu. Hann sendi þann sem getur bjargað okkur, og nafn hans er Jesús. Það þýðir „Guð frelsar“. Biblían útskýrir þetta á eftirfarandi hátt: „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ (Jóhannes 3:16) Hér sjáum við sönnunina á því að Guð elskar okkur og lætur sér annt um okkur. Hann kom sjálfur til okkar í persónu Jesú Krists. Jesús sagði að hann væri kominn til þess að leita að hinum týnda og frelsa hann, bjarga honum. Hann kom ekki bara til þess að sýna okkur hvernig Guð er, eða til þess að predika og lifa fullkomnu lífi. Hann kom til þess að frelsa okkur, og þess vegna varð hann að láta lífið til þess að bjarga okkur. Jesús sagði: Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. ... Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



