| Af hverju er óreiða í heiminum? |
|
|
|
|
Það sem við gerum hefur afleiðingar fyrir aðra. Góðsemd gerir aðra hamingjusama, sjálfselska leiðir hins vegar til þjáninga og sárinda. Það er sláandi sannleikur sem Biblían segir, að það sem maðurinn sáir muni hann uppskera. Mitt eigið sjálfumglaða eðli hefur ekki einungis afleiðingar fyrir mitt eigið líf, heldur fyrir alla sem ég umgengst. Það eru þrír þættir í eðli syndarinnar sem við skullum líta á: SYNDIN EYÐILEGGUR Syndin er sem ljót svört klessa á hvítri blaðsíðu. Hvort sem ég er sjálfselskur, latur eða hugsunarlaus, eða ég lýg eða ber út slúðursögur, þá eyðileggur það smám saman persónuleika minn. En ekki nóg með það. Það eitrar einnig huga og líf annarra. Við gerum okkur sjaldnast grein fyrir því hve mikil áhrif það sem við segjum og gerum hefur á aðra. Heimilisfaðir, sem er alkóhólisti og sífellt drukkinn, bakar heimilinu ósegjanlega mikla sorg og skaðar einnig hina í fjölskyldunni. Eigingjörn afstaða þeirra sem segjast alltaf hafa á réttu að standa eyðileggur fljótt og auðveldlega sambandið milli vina eða hjóna. SYNDIN BREIÐIST ÚT Syndin er eins og illgresið úti í garði: Sé það ekki rifið upp með rótum, breiðist það brátt út um allt. Jafnvel minnstu hliðarspor eða óheiðarleiki geta áður en varir þróast út í vana eða afstöðu sem við getum ekki breytt. Fyrsta eiturlyfjasprautan verður - nánast án þess að við tökum eftir því sjálf - að fangelsi sem við getum með engu móti brotist út úr. Óvingjarnlegt orð án þess að við biðjust afsökunar og fáum fyrirgefningu getur skapað spennu eða jafnvel eyðilagt samband tveggja einstaklinga. SYNDIN AÐSKILUR Það sem er verst af öllu er að syndin aðskilur okkur frá Guði. Syndin er eins og drungalegt ský sem dregur fyrir sólina. Þess vegna virðist eins og Guð sé svo órafjarri okkur. Hann er samt nálægur okkur og umlykur okkur á alla vegu, en það er syndin sem aðskilur okkur frá Guði. Þetta er nánast eins og bíll með góða vél og fullan bensíngeymi, sem vill þó ekki fara í gang. Hvers vegna ekki? Það er komið sót og óhreinindi á kertin. Þannig hefur syndin áhrif á sambandið milli okkar og Guðs. Hann er hreinn og heilagur. Hann hatar syndina, en elskar okkur. Það er synd okkar sem hefur lokað leiðinni til hans. Guð þráir að opinbera sig fyrir okkur, en hann getur það ekki af því að syndin er fyrir. Við getum ekkert gert við þessu. Það getur hins vegar Guð. Hann ákvað sjálfur að taka syndina burt. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



