| Af hverju breytum við rangt? |
|
|
|
|
Af hverju er því svo farið að okkur finnst auðveldara að gera það sem er rangt en það sem rétt er? Við þurfum ekki að kenna börnum að vera sjálfselsk og óþæg; það er eins og þetta komi bara af sjálfu sér sem eðlilegur hlutur. Hins vegar verðum við að leggja okkur í líma við að kenna þeim að vera þæg og góð. Innra með okkur öllum býr sú ósk að fá að gera það sem við sjálf viljum. Illska og óréttlæti leynist í hverjum einstaklingi sem fæddur er í þennan heim. Við sjáum það birtast í öllu hatri og öllu ofbeldi, í sjálfselsku og eyðilögðum samböndum manna á milli um allan heim. Fréttatímar útvarps og sjónvarps eru endalaus upptalning á afleiðingum illskunnar. Við sjáum þetta þegar fólk stendur á eigin kröfum án nokkurs tillits til afleiðinganna fyrir aðra. Við sjáum þetta einnig þegar við lítum í eigin barm og virðum fyrir okkur líf okkar, ef við erum raunverulega heiðarleg gagnvart sjálfum okkur. Allir leita síns eigin og ota sínum tota. Þetta er það sem Biblían kallar "synd". Mörgum fellur ekki við orðið "synd" og reyna að finna eitthvað annað í staðinn. Við viljum heldur kalla það mistök eða veikleika. Þú getur breytt merkimiðanum, en þú færð engu breytt um innihaldið. Þótt efnafræðingurinn fjarlægði merkimiðann sem á stæði "eitur" og setti annan miða í staðinn, þá er það ekki aðeins heimskulegt heldur einnig hættulegt. Biblían heldur sig fast við rétta merkimiðann sem á stendur "synd". Synd er ekki bara að drepa, stela, ljúga eða ótrúmennska í hjónabandi. Ég syndga þegar ég geri það sem ég vil sjálfur, út frá eigin, sjálfselskum hvötum mínum. Þetta er undirrót allra vandamála okkar og stendur að baki sérhverju rifrildi og óhamingjusömum aðstæðum. Ég syndga þegar ég læt mig Guð engu skipta um. Hann hefur skapað mig og gefið mér allt sem ég á: heilsu, líkama, sál og hæfileika. Ég hef ekki orðið mér úti um nokkuð af þessu sjálfur. Ég tilheyri Guði, sem hefur gefið mér þetta allt. Ég syndga þegar ég segi: "Ég er minn eigin húsbóndi. Þetta er mitt eigið líf, og ég get gert við það hvað sem ég vil." Þetta er synd. Ég syndga þegar ég elska ekki Guð af öllu hjarta. Jesús sagði að æðsta boðorð lögmálsins væri þetta: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð“ [Matteus 22:37-38] Ekkert okkar getur elskað Guð á þennan hátt. Við höfum öll brotið þetta æðsta boðorð lögmálsins. Innst inni snúumst við mest um okkur sjálf og ekki um Guð. Það er þetta sem er að okkur. Biblían segir líka: Enginn réttlátur maður er til á jörðunni, er gjört hafi gott eitt og aldrei syndgað. ... Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. [Prédikarinn 7:20; Rómverjabréfið 3:23] Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



