| Hvað fór úrskeiðis? |
|
|
|
|
Allt í þessum heimi, sem Guð hafði skapað, var gott. Hver einasta skepna hafði nóg af mat og drykk, og fyrstu mennirnir bjuggu við þessar ævintýralegu aðstæður. Guð vildi að þeir væru vinir sínir og gættu jarðarinnar og alls sem á henni var. Guð gaf þeim dýrmæta gjöf: Frjálsan vilja. Hann skapaði þá ekki eins og vélar eða vélmenni sem væru þvinguð til að elska og hlýðnast honum. Það er ekki hægt að þvinga neinn til þess að elska. Kærleikurinn hlýtur að koma eðlilega og af sjálfu sér. Megin munurinn á mönnum og dýrum er að maðurinn var skapaður í Guðs mynd með frjálsan vilja. Þessi frjálsi vilji gaf mönnunum möguleika á að velja rétt eða rangt, gott eða illt. Þeir gátu valið hvort þeir vildu elska hverjir aðra eða ekki. Þeim var í sjálfsvald sett hvort þeir vildu elska Guð eða ekki, fylgja honum eða sínum eigin vilja, og hvort þeir vildu lifa fyrir Guð eða fyrir sjálfa sig. Því miður völdu þeir að óhlýðnast Guði. Þeir vildu frekar fylgja eigin löngunum en því sem þóknaðist Guði. Af hverju gerðu þeir það? Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Allt illt og rangt á upphaf sitt í djöflinum. Jafnvel þótt enginn á okkar dögum sé í minnsta vafa um tilveru hins illa, þá eru þeir fáir sem trúa því að persónulegur djöfull sé til. Er það ekki bara skopleg vera með horn, klaufir og skrýtinn hala? Biblían biður okkur um að taka djöfulinn alvarlega. Hún segir okkur að það sé alls ekkert skoplegt við hann, þvert á móti! Hann var upprunalega ljóssins engill sem bjó á himnum. Þá hét hann Lúsífer, og það þýðir "ljósberi". Hann fylltist metnaði og öfund og vildi verða eins og Guð. En svo var hann rekinn burt úr návist Guðs, og nú gerir hann allt sem hann getur til þess að snúa mönnum burt frá Guði. Orðið djöfull er komið af gríska orðinu "diabolos" sem merkir "ákærandi" og samsvarar hebreska orðinu "Satan" sem merkir "andstæðingur". Hann er andstæðingur Guðs og manna og ákærir menn og fellir þá. Það var hann sem freistaði fyrstu mannanna til þess að velja hið ranga og að óhlýðnast Guði. Þannig kom það sem Biblían kallar "synd" inn í heiminn og með henni allt hið illa og ranga í heiminum okkar og lífi mannanna. Það er djöfullinn sem hefur haldið áfram að lokka menn burt frá Guði allar götur síðan, allt frá fyrsta skipti. Af því menn hlýða á lygar Satans, vilja þeir einnig fylgja illum, sjálfselskum vegum hans. Þetta er orsök allra glæpa, misréttis og þjáninga í heiminum. Þetta býr að baki því að svo mikið er af illsku í heiminum, svo mörg mannleg sambönd eru eyðilögð og svo mikið er af sjálfselsku og girnd. Að eðli til snúumst við miklu meir um sjálf okkur en Guð. Þetta á við okkur öll, og þetta bitnar ekki aðeins á okkur sjálfum heldur öllum sem við komumst í samband við. Þetta er það sem Biblían kallar "synd". Það er þetta sem er að heiminum, eða með öðrum orðum: Það sem er að í heiminum okkar erum við, þú og ég. Nú skiljum við kannski hvað fór úrskeiðis. Meðan þriðjungur mannkyns hefur meir en nóg að bíta og brenna, eru milljónir manna sem svelta. Ef Guð skapaði allt gott, hvað fór eiginlega úrskeiðis? Biblían segir: Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. (Rómverjabréfið 3:23) Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



