| Hvernig byrjaði þetta allt? |
|
|
|
|
Vísindin segja okkur að það hafi tekið alheiminn milljónir ára að breytast áður en jarðarkringlan okkar varð eins og hún er á okkar dögum. Hægt er að reikna út aldurinn á mismunandi bergtegundum með býsna mikilli nákvæmni. En þegar við snúum okkur að fyrstu blaðsíðum Biblíunnar - í Fyrstu Mósebók - fáum við að vita að Guð skapaði heiminn á sex dögum. Stöndum við ekki hér frammi fyrir hrópandi ósamræmi? Við verðum að muna að Biblían er ekki kennslubók í náttúruvísindum, og notar heldur ekki málfar og framsetningarmáta vísindanna. Ljóðræn og myndræn frásögnin opinberar okkur grundvallarsannindi um sköpunina. Það er staðreynd að hebreska orðið fyrir dag getur einnig þýtt tímabil eða tímaskeið. Þegar við lesum 1. kafla fyrstu Mósebókar getum við litið á sköpunarsöguna á nýjan hátt. Hún segir ekki bara frá því hvernig það gerðist, heldur hvers vegna. Að baki atburðarásinni í sköpuninni sjáum við hvernig Guð hrindir hægt en örugglega í framkvæmd þeim áætlunum sem hann hefur með allt líf á jörðunni. En hver var tilgangurinn, og af hverju erum við hér? Við erum sköpuð í Guðs mynd. Það þýðir ekki, að Guð sé í einhverri risastórri mannsmynd. Það merkir, að við - á sama hátt og Guð - getum elskað og valið, hugsað og tekið skynsamlegar ákvarðanir. Við erum persónur með sál og vilja. Við erum sköpuð til þess að lifa í sérstöku sambandi eða samfélagi við Guð, til þess að þekkja hann og elska hann, tilheyra honum og vera börn hans. Við erum sköpð til þess að tilbiðja Guð. Jafnvel hinir frumstæðustu menn hafa í sér eðlishvöt og þörf fyrir að tilbiðja einhvern guð. Við erum sköpuð til þess að gæta og vaka yfir jörðinni og öllum lifandi verum, til þess að þróa áfram hin ótrúlega miklu auðæfi og auðlindir jarðarinnar og færa okkur þær í nyt af skynsemi. Við erum sköpuð með óendanlega mikla sköpunarhæfileika hvað varðar tónlist, myndlist, vísindi, læknisfræði og tækni. Það er hluti af eðli okkar að rannsaka og finna upp nýja hluti. Þar sem við sjáum alla þessa hæfileika notaða til sköpunar, þar sjáum við Guð að starfi, hvort sem við gefum honum dýrðina eða ekki. Því að hann er ekki aðeins sá sem gaf okkur lífið, heldur er hann sjálf uppspretta alls lífs. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



