|
Ef þú rannsakar bók eða tónverk, getur þú fundið ýmislegt út um höfundinn.
Ef við horfum á sköpunarverkið og heiminn sem við lifum í, getum við lært ýmislegt um skaparann. Við sjáum að skaparinn elskar liti og fegurð, og við uppgötvum umhyggju hans fyrir smæstu og fíngerðustu smáatriðum. Hann er verkfræðingur og arkitekt í sérflokki. Mannslíkaminn og öll þau ferli sem hann býr yfir eru algjört meistaraverk.
Þegar við lítum mikilfengleik fjallanna og hafsins, og skynjum hinar gífurlegu fjarlægðir himingeimsins, segja einnig þau okkur eitthvað um almáttugan kraft skaparans.
En hvernig er Guð? Ef við sjálf viljum kynnast honum, verðum við að leyfa honum að opinbera sig fyrir okkur. Við getum komist að raun um hvernig Guð er þegar við lesum í Biblíunni. Ritningin segir okkur að "Guð er andi". En hvað merkir það?
Við búum yfir líkama sem er vel til þess fallinn að lifa hér á jörðinni. Fiskurinn býr yfir líkama sem hentar vel í vatni. Guð býr á himnum, þess vegna er hann andi.
Þetta þýðir ekki að Guð sé einhver draugaleg vofa. Hann er persóna og hefur vilja og sál. Hann getur farið hvert sem er, sér allt og veit um allt sem gerist. Hann getur elskað okkur, leitt okkur og verndað okkur. Hann er miklu undursamlegri en við munum nokkurn tíma geta skilið eða gert okkur grein fyrir að fullu.
Þess vegna ákvað hann að koma sjálfur til jarðarinnar til þess að sýna okkur á þann hátt sem við gætum skilið, hver hann er. Hann kom sem lítið barn. Móðir hans var sveitastúlka sem hét María. Hann fæddist á sama hátt og við, og samt var þessi fæðing öðru vísi, af því Guð var Faðir hans.
Jesús var sannur maður og samtímis sannur Guð. Hann var alveg venjulegur maður, en hann var einnig Guð sem bjó og lifði meðal okkar.
Af því að hann er maður, skilur hann öll okkar vandamál.
Af því að hann er Guð, er hann fær um að hjálpa okkur.
Jesús sagði: „Sá sem hefur séð mig hefur séð föðurinn.“ (Jóhannes 14:9)
Guðlaugur Gunnarsson
|