| Hver skapaði Guð? |
|
|
|
|
Guð er nafnið sem við notum til að tala um hinn mikla og stórfenglega Skapara alls sem er - hann sem skapaði allan heiminn og sem einn getur gefið líf. Við lifum í tíma og rúmi, og það felur í sér að við eigum okkur upphaf og endi við fæðingu og dauða. Fyrst við erum svona sjálf, álítum við að þetta eigi einnig við um Guð. En hann er allt öðru vísi. Biblían, sem er orð Guðs, segir okkur að Guð eigi sér ekkert upphaf né endi. Hann takmarkast ekki af tímanum - klukkustundum, dögum, vikum, mánuðum og árum - eins og við. Hann er eilífur. Ef einhver hefði nú búið Guð til, þá hlyti sá hinn sami að vera meiri og máttugri en Guð. En Guð hefur allan mátt, hann er almáttugur. Hver skapaði Guð? Svarið er: Enginn. Hugsaðu þér himingeiminn. Hann hefur hvorki upphaf né endi. Þannig er einnig Guð óendanlega mikill, miklu meiri en skilningarvit okkar geta numið. Við lifum í síbreytilegum heimi. Tískan breytist, stjórnmálamenn koma og fara. Átrúnaðargoð í íþróttum og tónlist eru á toppnum eitt árið og gleymd árið eftir. Við breytumst einnig, vinátta, venjur og líkami okkar einnig. Guð breytist ekki. Kærleiki hans og umhyggja eru óumbreytanleg. Það er ekki svo að hann elski okkur einn daginn og láti okkur sig engu skipta hinn daginn. Hann er hinn eini sem við getum treyst fullkomlega. Hann mun aldrei bregðast okkur. Enginn skapaði Guð. Hann hefur alltaf verið til. Hann er óumbreytanlegur. Hann verður aldrei gamall eða veikur. Með því að virða fyrir okkur sköpunarverk Guðs og gleðjast yfir því, getum við eignast örlitla tilfinningu fyrir mikilleika Guðs. Með því að lesa orð Guðs í Biblíunni getum við skilið að þessi stórfenglegi Guð elskar okkur mennina í smæð okkar og þráir að eiga persónulegt samfélag við okkur. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



