Kristniboðssambandið


Hvernig getum við vitað hvort nokkur Guð sé til? PDF Prenta Senda
Sumir segja: „Það er enginn Guð til, af því ég get ekki séð hann.“ En það eru margir hlutir í lífinu sem við getum ekki séð, en vitum að eru þarna samt.

Við getum ekki séð vindinn. Við vitum að hann er þarna, af því við getum séð að hann hreyfir við þvottinum úti á snúru og leikur um laufin á trjánum.

Við getum ekki séð rafmagnsstraum. Við vitum að hann er þarna þegar við kveikjum á lampa.

Við getum ekki séð andrúmsloftið. Við vitum að það er þarna, af því að án þess gætum við ekki lifað meira en í eina mínútu.

Við getum ekki séð ástina. En við vitum að hún er þarna í þeim sem þykir vænt um okkur og sýna okkur umhyggju.

Við getum ekki séð Guð. Við vitum að hann er þarna vegna þess stórkostlega heims sem við lifum í. Heimurinn er fullur fegurðar og lita og ótrúlegustu forma, allt frá smæstu örverum til risastórra hnatta úti í óendanlegum himingeimnum.

Ekkert gerist fyrir tilviljun. Þegar maður skrifar bók, er því ekki þannig farið að bókstafirnir komi fljúgandi í loftinu og hafni fyrir tilviljun á réttum stað. Einhver verður að setja þá saman til þess að þeir hafi einhverja merkingu. Þess vegna verður bók að eiga sér höfund - einhvern sem getur skrifað hana. Málverk hlýtur að eiga sér listmálara - einhvern sem getur málað það. Hús hlýtur að eiga sér arkitekt - einhvern, sem getur hannað það.

Þannig er heimurinn okkar einnig. Hann varð ekki til fyrir tilviljun. Það var einhver sem skipulagði og hannaði hann og setti hann saman. Þennan mikla hönnuð, arkitekt og skapara köllum við Guð.

Guði þykir vænt um sköpunarverk sitt. Hann elskar okkur mennina svo mikið að hann lagði sinn eigin son í sölurnar til þess að bjarga okkur frá glötun og tortímingu í tilgangsleysinu sem við upplifum þegar við lifum ekki í persónulegu samfélagi við hann. Orð Guðs segir:

Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
[Jóhannes 3:16]


Þetta eru orð til þín. Taktu þau til þín. Leitastu eftir að kynnast Guði. Lestu orð hans eins og það er að finna í Biblíunni.

Guð blessi þig.

Guðlaugur Gunnarsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni