| Hver er tilgangur lífsins? |
|
|
|
|
„Það einasta sem ég óska mér er að fá að vera hamingjusamur. Meðan ég á heimili, fjölskyldu og vini og nóg af peningum til að geta gert það sem ég vil þegar ég vil, þá er allt í fínu lagi. Þá líður mér vel.“ Innst inni vitum við að þetta er ekki nóg. Við reynum að loka augunum fyrir öllu óþægilegu. Helst viljum við ekki skoða okkur sjálf of náið af ótta við það sem við gætum uppgötvað. Og svo líða dagarnir, vikurnar og árin okkar framhjá á sífellt meiri hraða. En svo gerist óhapp. Þú missir vinnuna eða fellur á prófi. Náið samband fer út um þúfur. Einhver sem þú elskar deyr, og sá heimur sem þú þekkir hrynur saman með braki og brestum. „Ó, Guð!“ hrópum við, en erum ekki viss um að það sé neinn Guð, sem heyrir eða skiptir sér af okkur, og okkur finnst við einmana og fyllumst tómleika. Hamingjan, sem við þráum, hverfur eins og dögg fyrir sólu. Okkur hér á kristniboðsvefnum langar til að segja þér, að Guð er til, og hann lætur sig miklu varða um þig. Hann elskar þig og þekkir þig. Hann þráir að eiga persónulegt samfélag við þig. Hann hefur fyrirætlanir með þennan heim og tilveru þína. Fyrirætlanir sem hann vill fá að framkvæma í lífi þínu, fyrirætlanir til heilla, en ekki óhamingju, - að veita þér vonarríka framtíð. Guð segir við þig í orði sínu: Þú ert dýrmætur í mínum augum og mikils metinn. ... Með ævarandi elsku hefi ég elskað þig. [Jesaja 43:4; Jeremía 31:3] Leitaðu til skapara þíns, lestu orð hans í Biblíunni. Þar muntu finna tilganginn með lífi þínu. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



