| Hver er tilgangurinn? |
|
|
|
|
"Guðmundur hafði unnið og stritað allt sitt líf. Hann var einmitt nýkominn á eftirlaun, og við hlökkuðum til þess að byrja að njóta lífsins - og nú er hann dáinn. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Það erum við sem fæddum þetta barn í heiminn. En hann fer bara sínar eigin leiðir og sýnir ekkert þakklæti fyrir nokkurn hlut! - Og nú er hann lentur í einhverju klandri við lögguna. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Ég er búin að vera gift í tvö ár. Við vorum búin að spara peninga og leggja í þessa íbúð, og ég hélt að allt væri í stakasta lagi. - Og nú er konan bara stungin af með einhverjum öðrum gæa. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Ég lagði mikið á mig í náminu og tókst að fá tilskilinn árangur við útskriftina - en nú get ég hvergi fengið atvinnu. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Við reyndum að eignast barn en það tók okkur átta ár, og nú er litla stúlkan okkar komin með krabbamein. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Ástandið er mjög slæmt. Jörðin er að brotna saman sem vistkerfi. Ætli þetta endi ekki hjá okkur flestum með einhverju stórkostlegu kjarnorkuslysi? Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?" "Ég fer í vinnuna, kem heim, fæ mér að borða, sef og fer aftur í vinnuna. Lífið er bara endalaus leiðinda hringrás. Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu öllu?" Já, hver er tilgangurinn með lífinu - af hverju er ég hér? Er til nokkur Guð, og lætur hann sig nokkru varða um okkur? Já! Guð er til. Hann elskar þig og hann hefur ákveðnar fyrirætlanir í hyggju með þig. Hann er að leita þín. Leyfðu honum að finna þig. Hlustaðu á hvað hann segir við þig í orði sínu, Biblíunni: "Ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður. Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta, vil ég láta yður finna mig - segir Drottinn - og snúa við högum yðar." (Jeremía 29:11-14a). Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



