| Skilnaðarbarn |
|
|
|
|
Foreldrar mínir skildu og oft finnst mér ég viti ekki í hvorn fótinn ég eigi að stíga. Ég bý hjá pabba í nokkra mánuði, síðan fer ég til mömmu og er með henni í nokkra mánuði, þá aftur hjá pabba o.s.frv. Stundum er eins og öllum sé sama um mig. Kæri vinur, mig tekur sárt að heyra um líðan þína. Því miður fjölgar hjónaskilnuðum í landi okkar og þú átt marga þjáningabræður. Vera má að frásaga þín fái einhver hjón til að hugsa sig betur um ef þau eru að ráðgera að skilja, svo að þau átti sig á hvílík nauðsyn það er að reyna að endurreisa hjónabandið í stað þess að fara hvert frá öðru. Margir ætla að skilnaður sé auðveld leið út úr erfiðleikum í hjónabandi en sú er sjaldnast raunin. Mér kæmi ekki á óvart þó að foreldrar þínir undruðust hvernig þú lýsir tilfinningum þínum. Þau myndu sennilega leggja áherslu á að þeim þætti báðum ákaflega vænt um þig, annars hefðu þau ekki fyrir því að skipuleggja tíma sinn til að sinna þér. Þú mátt ekki halda að þú sér öðrum aðeins til skapraunar og óþæginda. Það er augljóst að þau vilja leysa úr hverjum vanda sem að þér steðjar vegna skilnaðar þeirra. En ég vil líka benda þér á mjög mikilvægt atriði og það er að Guð elskar þig með eilífum kærleika. Kærleiki hans er miklu meiri en mannleg elska getur nokkru sinni orðið. Þú ert ungur og það besta sem þú getur gert er að helga líf þitt Kristi og veita viðtöku kærleika Guðs til þín. Svo heitt elskar Guð þig að hann var fús að senda einkason sinn til að hann fórnaði lífi sínu á krossinum fyrir syndir þínar. Nú vill hann koma inn í líf þitt svo að þú verðir hluti af fjölskyldu hans. Hugsaðu þér: Þú getur orðið barn Guðs, tilheyrt fjölskyldu hans um eilífð! Lærðu að ganga með Guði á hverjum degi. Byrjaðu með því að gefast Kristi. Síðan skaltu biðja hann daglega og lesa orð hans, Biblíuna. Mesta uppgötvun sem nokkur maður getur gert er að komast að raun um að Guð elskar hann – og það getur orðið reynsla þín þegar þú gefur Kristi hjarta þitt. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



