| Kristur og konur |
|
|
|
|
Kona nokkur kom fram í sjónvarpi um daginn og hélt því fram að ekkert væri eins alvarleg hindrun gegn því að konur fengju jafnan rétt á við karlmenn og trúarbrögðin. Hún kvað trúarbrögðin ævinlega kúga konur og hindra að þær næðu því marki sem þeim væri sett. Hvernig viltu svara þessu? Ég lít svo á að þetta sé alls ekki rétt að því er kristna trú varðar – heldur einmitt hið gagnstæða. Það er söguleg staðreynd að kristin kirkja hefur oft vegsamað stöðu og gildi konunnar í fyrirætlun Guðs með lýð sinn. Þegar kristnum mönnum hefur láðst að gera þetta stafar það af því að þeir hafa gleymt hvað Biblían kennir um elsku Guðs til allra manna – bæði karla og kvenna – og hversu vilji hans er fullkominn gagnvart öllum þeim sem festa traust á Kristi. „Hér er enginn ... karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú“ (Galat. 3,28). Þetta táknar ekki að ég hljóti að samþykkja þau markmið, sem konan er þú vitnaðir til, hefur sett sér vegna kvenna. Ég veit að fólk greinir á um þessi mál og mig langar að gefa gaum að því sem Biblían segir um þau. Ég dáist að því t.d. hversu margvísleg verkefni konur í Biblíunni voru færar um að leysa af hendi. Debóra var dómari og herforingi (Dóm. 4). Ester var drottning í heimsríki Persa og frelsaði Gyðingaþjóðina frá útrýmingu (Esterarbók). Lýdía var dugandi kaupmaður (Post. 16). Jafnframt þessu leggur Biblían áherslu á að Guð hafi skapað karl og konu ólík að því er varðaði sálræna eiginleika og tilfinningar. Það er því rangt þegar sagt er að konan nái því aðeins „markinu sem henni er sett“ að hún geri nákvæmlega það sem karlmaður gerir. Hún er einstæð sem kona og fullkomnast þegar hún getur orðið fullkomlega sú manneskja sem Guð vill að hún sé. Margt fleira mætti segja um lagalegar og félagslegar hliðar varðandi konur nú á dögum. En ég vil einkum benda á þetta: Maðurinn – karl eða kona – getur náð marki sínu, hlotið fyllingu, einungis í Kristi. Guð skapaði okkur hvert um sig með eitthvað ákveðið í huga. Okkur getur vegnað vel að ytra hætti en markinu náum við þegar við finnum vilja Guðs varðandi líf okkar og breytum eftir honum. Og sú getur sannarlega orðið reynsla okkar allra ef við snúum okkur af öllu hjarta til Guðs og látum hann ráða ferðinni. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



