| Kristur er lækningin |
|
|
|
|
Trúmál eru mjög persónuleg að mínum dómi og ég sé enga ástæðu til að reyna að fá aðra til að trúa á sama hátt og ég. Þegar öllu er á botninn hvolft hafa flestir sínar eigin skoðanir á Guði og mér finnst það ekki í minum verkahring að breyta afstöðu þeirra, svo lengi sem þeir trúa einhverju. Hugsum okkur rétt sem snöggvast að þú værir með mjög slæmt krabbamein og vissa væri fyrir því að dagar þínir væru senn taldir. Svo gerum við okkur í hugarlund að þér tækist allt í einu að finna upp lækningu á sjúkdómnum og þú yrðir heil heilsu. Ég er viss um að hjarta þitt fylltist þakklæti. En gerum ráð fyrir að í kringum þig væri fjöldi fólks sem væri haldið sama sjúkdómi. Væri rétt af þér að sitja ein yfir lækningunni og veita ekki öðrum hlutdeild í henni? Auðvitað ekki. Biblían segir að mannkynið sé haldið hræðilegum, andlegum sjúkdómi, sjúkdómi syndarinnar. Það er ekki aðeins að allir séu sjúkir heldur eru afleiðingarnar skelfilegar, þ.e. dauði og víti. En til er lækning! Guð hefur sjálfur komið með lyf við sjúkdómi syndarinnar og það er Jesús Kristur. Á krossinum tók Kristur út refsinguna fyrir syndir okkar. Ef við felum honum sáluhjálp okkar getum við fengið fyrirgefningu og hreinsun syndanna og öðlast sátt við föður okkar á himnum. Biblían segir: “Laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum” (Róm. 6,23). Ég geri mér ljóst að þú trúir þessu ef til vill ekki á þessari stundu. En ég bið þess að þú rannsakir sjálf boðskap Nýja testamentisins og takir eftir því að Jesús Kristur er úrræði Guðs við syndinni. En við sem höfum tekið trú á Krist lítum svo á að Guð hafi ekki aðeins hreinsað okkur af synd heldur vilji hann hreinsa aðra líka. Og það er eina ástæðan til þess að okkur langar til að aðrir þekki Krist og okkur finnst það skylda okkar að segja öðrum frá honum. Fagnaðarerindið er ekki einkamál. Líf og dauði eru háð fagnaðarerindinu. Því er það að ég hvet þig líka til að hugsa um Krist og trúa á hann, að hann einn hjálpi þér í syndum þínum. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



