| Snúðu þér strax! |
|
|
|
|
Vinur minn einn hefur verið að ræða við mig um það að ég veitti Jesú Kristi viðtöku. Mér líst vel á það en mig langar til að kynnast svolítið glensi og gamni áður en ég geri það. Hann segir að rangt sé að fresta því að snúa sér til Drottins. Hvað finnst þér? Ég er sammála vini þínum og að því hníga mörg rök. Biblían varar okkur við því að fresta þessari ákvörðun og ég lít mjög alvarlegum augum á þá viðvörun. Hún segir: “Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur” (2. Kor. 6,2). Hvers vegna varar Biblían okkur við öllum undandrætti? Ein ástæðan er sú hversu lífið er ótryggt. Mundu eftir sögunni sem Jesús sagði um ríka manninn. Hann sagði við sjálfan sig: “Sála mín ... hvíl þig nú, et og drekk og ver glö” (Lúk. 12,19). En þessa sömu nótt dó hann og Guð mælti: “Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð” (v. 20). Hugsaðu um hversu hörmulegt það væri ef þú drægir það að veita Kristi viðtöku og þú færist snögglega í árekstri eða öðru slysi. Þú glataðist að eilífu vegna þess að þú dróst það sem þú áttir að hafa gert. Önnur ástæða til þess að Biblían varar okkur við að láta hjá líða að snúa okkur til Krists er sú að hjarta okkar er þannig að það kólnar æ meir gagnvart Guði uns öll löngun til að gera iðrun er horfin. Páll vitnaði og beindi orðum sínum til rómversks landstjóra, sem Felix hét, og varaði hann við að fresta því að snúa sér, enda væri dómsdagur örugglega í vændum. En Felix svaraði: “Far burt að sinni. Ég læt kalla á þig þegar ég fæ tóm til” (Post. 24,25). En hjarta Felixar kólnaði og hann sneri sér aldrei til Krists. Ég hygg að það sé eitt enn sem veldur því að Biblían áminnir okkur um að láta ekki undir höfuð leggjast að snúa okkur. Það er að Guð elskar okkur og þráir að við eignumst gleði og frið sem Kristur einn getur gefið. Ég veit að þú heldur að líf fjarri Guði sé meiri háttar fjör en svo er ekki. Ég hef kynnst vonsviknum mönnum. Sumir eru ákaflega leiðir á lífinu. Í hópi þeirra eru menn sem hafa dreypt á öllum veigum skemmtanalífs og ævintýra er heimurinn býður upp á. Hjarta þeirra er tómt og leitandi eftir sem áður. Kristur vill gefa þér nýja byrjun í lífinu. Þegar þú ferð að fylgja honum kynnistu mesta ævintýri lífsins. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



