Kristniboðssambandið


Við erum gjaldþrota PDF Prenta Senda
Við erum bókstaflega öllu rúin eftir að verslunin okkar fór á hausinn fyrir nokkrum mánuðum.  Hvers vegna heldurðu að Guð hafi látið þetta koma fyrir okkur?

Ég hygg að fátt sé eins torskilið og þetta, hvers vegna Guð leyfir að þetta eða hitt beri okkur að höndum – veikindi, vonbrigði, vinslit, fjárþröng og fjölmargt annað.  Það er eðlilegt að við reynum að komast hjá þessu ef við mættum.  Við gætum jafnvel freistast til að efast um að Guð elskaði okkur í raun og veru úr því að hann leyfir að slíkt hrelli okkur.

En þó að við skiljum ekki alltaf hvers vegna Guð lætur slíkt viðgangast verðum við að muna að hann getur notað þetta í lífi okkar, til að kenna okkur og draga okkur nær sér.  Auðvitað veit ég ekki fullkomlega hvernig allt er í pottinn búið hjá ykkur, en ég hef þekkt aðra sem hafa átt svipaða reynslu.

Þeir hafa komist að raun um á nýjan hátt hvað það er að treysta Guði fyrir hinu ókomna.  Þeir hafa gert sér ljóst að þeir hefðu ef til vill aldrei lært þá lexíu eins vel og raunin varð ef þeir hefðu ekki misst efnalegt öryggi.  Þeir hugsuðu lítið um Guð meðan fjárhagurinn stóð föstum fótum og reiddu sig á eigur sínar.

En nú hafa þeir áttað sig á því að nýju að Guð einn ætti að vera grundvöllur lífs okkar.  Páll sagði unga prestinum Tímóteusi:  “Bjóð þú ríkismönnum þessarar aldar að hreykja sér ekki né treysta fallvöltum auði, heldur Guði sem lætur oss allt ríkulega í té til nautnar” (1. Tím. 6,17).

Ég veit að þú gætir orðið bitur og reiður gagnvart Guði á þessum tíma en ég vona að þú bregðist ekki þannig við.  Bið heldur Guð að hjálpa þér að læra það sem hann vill af þessari reynslu.  Bið hann að hjálpa þér að treysta honum betur og vaxa í kærleika til hans.  Ekkert hendir barn Guðs af tilviljun.  Páll gat skrifað í lítt þægilegu fangelsi í Róm:  “Ég hef lært að láta mér nægja það sem fyrir hendi er.  Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort” (Fil. 4,11-12).  Verði sú reynsla þín er þú setur allt traust á Krist.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni