Kristniboðssambandið


Kristur einn frelsar PDF Prenta Senda
Ég er í hópi sem þú mundir líklega kalla trúflokk.  Ég fór til þeirra í von um að finna Guð en tómleikinn ríkir enn í hjarta mínu.  Ég hefði helst viljað snúa baki við þeim en ég er hræddur því að þeir segja mér að þá missi ég af sáluhjálpinni.  Hvað á ég að gera?

Þér hefur verið sagt aftur og aftur að sáluhjálp sé hvergi að finna nema í þessum hópi svo að það er skiljanlegt að þú hikir við að fara frá þeim.  En þú veist í hjarta þínu, reynslan segir þér það, að staðhæfingar þeirra standast ekki.  Ef þeir þekktu veg Guðs til hjálpræðis ríkti tómleikinn ekki í huga þér.  Í Biblíunni er því lofað að Guð ”umbuni þeim er hans leita” (Hebr. 11,6).

Það er því tvennt sem þú þarft að gera.  Annars vegar ber þér að yfirgefa þennan hóp.  Þú finnur ekki hinn sanna hjálpræðisveg Guðs meðan þú ert með þessu fólki.  Ég veit að þetta kann að reynast þér erfitt.  En það væri hörmulegt ef þú færir á mis við hjálpræðið og alla blessun sem það felur í sér.

Þá skaltu biðja þess að þú megir koma til Jesú Krists því að í honum einum finnur þú sannan frið og gleði.  Ástæðan er sú að Guð hefur komið því svo fyrir að sáluhjálpin fáist fyrir hann.  Við frelsumst einungis í trú á hann.

Sjáðu til:  Mesti andlegi vandi þinn er synd þín.  Hún skilur þig frá Guði.  Þessa synd getur þú ekki máð í burtu, hvorki þú né nein mannleg fræði eða kerfi.  Guð einn getur afmáð synd þína – og þess vegna sendi hann son sinn í heiminn.  Kristur kom ekki til þess eins að kenna okkur nýja breytni.  Hann kom til að taka syndir okkar í burtu með því að deyja á krossinum.  Jesús sagði:  ”Mannssonurinn er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það” (Lúk. 19,10).

Komdu til Krists.  Gakktu síðan í söfnuð þar sem predikað er og kennt um Krist.  Sjáðu hvað Guð sjálfur hefur birt okkur í orði sínu, Biblíunni.  Leitastu síðan við að lifa í samfélagi við Krist á hverjum degi er þú gengur með honum.  Það er eins og Biblían segir:

„Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum.  Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld sem getur frelsað oss“ (Post. 4,12).
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni