| Þú getur byrjað upp á nýtt |
|
|
|
|
Er unnt að byrja lífið að nýju? Ég hef farið svo illa að ráði mínu að ég vildi kosta miklu til að geta byrjað aftur með hreinan skjöld. Ég ætla að segja þér frá kynsystur þinni sem Jesús hitti einu sinni. Ef til vill stóð ekki eins á fyrir henni og þér. En hún hafði líka farið vill vega um dagana og þarfnaðist þess vissulega að geta byrjað upp á nýtt. Og það er einmitt það sem gerðist þegar fundum hennar og Jesú bar saman. Þetta getur líka orðið þín reynsla. Þú getur lesið um hana í fjórða kapítulanum í guðspjalli Jóhannesar. Hún átti heima í héraðinu Samaríu og Jesús lagði þar eitt sinn leið sína ásamt lærisveinum sínum. Hann hitti hana við brunn og fór að tala við hana, með mildi en festu, og leiddi henni fyrir sjónir hversu hún þarfnaðist fyrirgefningar og nýs lífs með Guði. Hún hafði gifst fimm sinnum og bjó nú ógift með enn einum manni. Þó sagði Jesús henni að hún gæti öðlast nýtt líf ef hún tryði á hann og fylgdi honum. Hún trúði og líf hennar breyttist. Já, þú getur byrjað á ný með hreinan skjöld. Hvernig má það verða? Það gerist ekki þó að þú takir nýjar ákvarðanir eða reynir í eigin mætti að breyta lífi þínu. Það hefur þú eflaust reynt og án árangurs. En það getur orðið – með Guði. Guð gefur afmáð hið liðna með fyrirgefningu synda þinna og gefið lífi þínu nýja stefnu þegar þú reynir að ganga með Kristi á hverjum degi. Það merkir ekki að alltaf sé auðvelt að fylgja Kristi í stað þess að hlýða löngunum sínum, en hann getur gefið okkur kraft og ný markmið og visku ef við viljum leyfa honum það. Ég hvet þig til að krjúpa á þessari stundu og játa að þú þarfnist fyrirgefningar Guðs. Bið Krist að koma inn í hjarta þitt og hreinsa þig. Segðu honum síðan að þú þráir að fylgja honum, fyrir sakir náðar hans, og láta hann sitja í fyrirrúmi í lífi þínu. Biblían segir: “Ef einhver er í Kristi er hann skapaður á ný. Hið gamla varð að engu. Sjá, nýtt er orðið til” (2. Kor. 5,17). Óteljandi fjöldi manna hefur reynt þetta frá upphafi vega og þetta getur orðið þín reynsla ef þú vilt snúa hjarta þínu til Krists. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



