| Vonlaus framtíð |
|
|
|
|
Ég verð hræddur í hvert skipti sem ég les dagblöðin. Stjórnleysið er þvílíkt að ég velti því fyrir mér hvort við eigum nokkra framtíð. Óttinn gagntekur mig því meir sem ég íhuga þetta. Finnst þér rétt að hugsa á þessa leið? Já, fyrirsagnirnar virðast magnast með hverjum deginum sem líður. Jesús talaði um að menn myndu “gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina” (Lúk. 21,26).Eigum við nokkra framtíð? Ég viðurkenni að horfurnar virðast dapurlegar ef dæma skal af fyrirsögnum blaðanna. En ég er bjartsýnismaður vegna þess að ég hef lesið Nýja testamentið og ég veit að það er Guð sem segir síðasta orðið, ekki maðurinn! Þegar dýpst er skyggnst hefur Guð þræðina í sinni hendi og sú stund kemur þegar hann lætur til sín taka og stofnar eilíft ríki sitt. “En eftir fyrirheiti hans væntum vér nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr” (2. Pét. 3,13). Sjáðu til: Maðurinn hefur snúið baki við Guði. Það er það sem hefur gerst. Guð átti að vera kjarni lífs okkar en í staðinn ráða fýsnir og ágirnd. Glundroðinn verður ríkjandi svo lengi sem við látum Guð vera aukaatriði og neitum að hlíta áformum hans um líf okkar. Þannig verður það í samskiptum þjóða í milli og í lífi okkar hvers um sig. Það er aðeins til ein varanleg lausn. Hún er sú að við hverfum aftur til Guðs í iðrun og trú. Hvernig getum við horft til framtíðarinnar í von og með frið í hjarta? Í fyrsta lagi hvet ég þig til að gefa Jesú Kristi líf þitt. Snúðu þér til hans og láttu hann verða frelsara þinn og Drottin. Mundu svo að ekkert getur svipt þig kærleika hans og nærveru. Það felur ekki í sér að allir erfiðleikar verði á braut en það felur í sér að þú ert aldrei einn og Guð mun styrkja þig. Guð segir okkur í Biblíunni: “Óttast þú eigi því að ég frelsa þig. Ég kalla á þig með nafni, þú ert minn. Gangir þú gegnum vötnin, þá er ég með þér, gegnum vatnsföllin, þá skulu þau ekki flæða yfir þig” (Jes. 43,1-2). Þú getur átt frið í hinni mestu ringulreið ef þú einblínir ekki á erfiðleika lífsins heldur snýrð þér til Krists. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



