| Hjónabandið: Ævilöng skuldbinding |
|
|
|
|
Eiginmaður vinkonu minnar yfirgaf hana nú fyrir skömmu. Hann sagðist vera sannfærður um að það væri vilji Guðs að þau skildu. Ég hef alltaf haldið að í Biblíunni væri fremur fast að orði kveðið um hjónaskilnað. Er það ekki rétt? Þetta er dæmi um það sem við getum öll freistast til: Við höldum að tilfinningar okkar og hugmyndir séu sama og vilji Guðs. Við getum orðið þess fullviss að næstum hvað sem er sé rétt, og ekki skortir sannfæringarhitann. En þar með er ekki öruggt að við höfum rétt fyrir okkur! Við þurfum að vita hvað Guð hefur sagt og megum aldrei blanda saman tilfinningum okkar og hugsunum og því sem Guð hefur opinberað í fullkomnu orði sínu, Biblíunni. Taktu vel eftir: Guð leiðir okkur aldrei til að gera það sem gengur þvert á það sem hann hefur sagt okkur í orði sínu. Nú veit ég ekki til fulls hvernig stendur á hjá vinkonu þinni. Hvað sem því líður er það rétt sem þú segir að Biblían kveður fast að orði um hjónaskilnað – miklu fastar en gert er almennt í þjóðfélagi okkar nú um stundir. Ástæðan til þess að Biblían lítur svona alvarlega á skilnað er sú að hún lítur svo alvarlega á hjónabandið! Hjónabandið er ævilöng skuldbinding, hátíðlegt loforð fyir Guði (og mönnum) að eiginmaðurinn og eiginkonan verði hvort öðru trú meðan bæði lifa. Jesús var einu sinni spurður hvort löglegt væri (eða heimilt) fyrir Guði að maður skildi við konu sína fyrir hvaða sök sem væri. Hann svaraði: “Hafið þér eigi lesið að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði: “Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður”? Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman má maður eigi sundur skilja” (Matt. 19,3-6). Jafnframt hefur Guð mátt til að fyrirgefa og lækna. Við megum ekki líta á fyrirgefningu hans með léttúð. Hún kostaði hann dauða sonarins á krossinum. En þegar við snúum okkur til Krists í sannri iðrun og trú hreinsar hann okkur af hverri synd og beinir fótum okkar á nýjan veg. Bið fyrir vinkonu þinni og reyndu að veita henni hlutdeild í kærleika Krists á þessum erfiða tíma í lífi hennar. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



