Kristniboðssambandið


Ég er fastur í snöru PDF Prenta Senda
Ég efast um að þú fáir mörg bréf eins og þetta. Ég er að læra í skóla og hef aflað mér viðurværis í mörg ár með því að selja öðrum nemendum fíknilyf. Nú vil ég komast út úr þessu en ér er hræddur vegna óvissunnar um hvað þeir sem sáu mér fyrir söluvarningi, ólöglega, gera við mig. Ætli ég hafi nokkra von um að losna úr snörunni?


Já, bréfið þitt er óvenjulegt en ég birti hér hluta úr því af því að ég veit að æ fleira ungt fólk freistast til að feta slíkar slóðir vegna þess að þannig virðist auðvelt að afla sér fjár.

En slíkir vegir enda í vegleysu eins og þú hefur komist að raun um og þeir sem fara þá eiga á hættu að lenda í snöru. Ef til vill miklaðist þú af því að hafa sneytt fram hjá hættunum en nú sérðu að erfitt er að snúa við. Staðhæfing Biblíunnar er sönn þó að við reynum oft að mótmæla henni: „Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera“ (Galatabréfið 6,7).

Hvernig skal þá brugðist við þessu? Gerðu þér ljóst að þú átt erfiðleika í vændum, hvaða leið sem þú ferð, en ég bið þess að þér veitist hugrekki til að gera það sem er rétt. Það væri rangt af þér að halda áfram á sömu braut, ekki aðeins vegna þess að þetta stríðir gegn landslögum heldur gerist þú sekur um að spilla lífi fjölda fólks. Það væri best og heiðarlegast að þú segðir lögreglunni hvað þú hefur aðhafst og legðir henni lið við að uppræta ólögleg viðskipti með eiturlyf. Ég veit að þetta útheimtir mikinn kjark og felur í sér áhættu. En ég hygg að þetta sé besta leiðin þegar á allt er litið.

En það er annað sem þú þarft að gera og það er að leita fyrirgefningar og hjálpar Guðs. Þú hefur syndgað, ekki aðeins gegn mönnum heldur gegn Guði sem skapaði þig og elskar þig. Þú þarfnast fyrirgefningar hans og hann er fís að veita þér hana ef þú vilt iðrast synda þinna og bjóða Kristi inn í líf þitt svo að hann verði frelsari þinn og Drottinn. Taktu síðan þá ákvörðun, fyrir náð og kraft Guðs, að lifa Kristi og leitast við að vegsama hann í öllu sem þú gerir. Hann vill gefa þér nýtt líf og það getur byrjað nú þegar ef þú vilt snúa þér af öllu hjarta til hans.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni