Heim Frímerki til SÍK
Frímerki til SÍK PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Fimmtudagur, 08 Maí 2008 15:02

Kristniboðssambandið hefur um langt skeið tekið við frímerkjum frá fólki og komið í verð öðrum til gagns og blessunar. Best er að fá frímerkin á umslögunum þar sem sum þeirra eru verðmætari þannig. Ýmsir hafa einnig gefið sambandinu gömul frímerkjasöfn, aðrir koma með gamla mynt og seðla, innlenda og erlenda, póstkort og annað sem verðmæti er í. Allt kemur þetta sér mjög vel. Jarle Reiersen sér um að koma frímerkjunum og og öðru sem gefið er í verð sem sjálfboðaliði.
Tekjur liðins árs (2009) vegna frímerkja og myntasölu voru um 2,2 milljónir.

Frímerkjunum má skila á skrifstofu SÍK, Austurveri, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, kl. 10-17 mánudaga til föstudaga en til 19 á fimmtudögum, í Litla húsinu, Glerárgötu 1, Akureyri, á skrifstofu Lindarinnar og eins í mörgum kirkjum landsins.

 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


© Samband íslenskra kristniboðsfélaga - Sniðmát hannað af Themza