| Kristniboðsdagurinn á sunnudag |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Fimmtudagur, 10 Nóvember 2011 15:07 |
|
Kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar er á sunnudag. Hvatt er til að kristniboðsins sé minnst og samskot tekin í guðsþjónustum dagsins. Kristniboðsalmanakinu verður einnig víða dreift við það tækifæri. Útvarpsmessan er frá Grensáskirkju. Þar mun sr. Ólafur Jóhannsson þjóna fyrir altari, Elsa Waage söngkona syngja einsöng og sr. Ragnar Gunnarsson prédika. Starfsmenn, kristniboðar og stjórnarfólk samtakanna taka víða þátt í guðsþjónustum dagsins með einum eða öðrum hætti. Síðdegis kl. 15-17 verður opið hús í nýjum húsarkynnum og skrifstofu Kristniboðssambandsins, Háaleitisbraut 58-60. Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup sér um húsblessun kl. 15:30. Allir eru velkomnir. Kl. 17 verður samkoma á vegum Salts kristins samfélags, aðildarfélags Kristniboðssambandsins, í Grensáskirkju. Katrín Guðlaugsdóttir segir frá ferðum sínum í Afríku og Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍK hefur hugleiðingu. Allir eru velkomnir. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.




