Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
| Góður samráðsfundur í Finnlandi |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Mánudagur, 06 September 2010 16:51 |
|
Framkvæmdastjóri SÍK sótti í liðinni viku samráðsfund kristniboðssamtaka sem vinna með Norsk Luthersk Misjonssamband (NLM) en fundir sem þessir eru haldnir á tveggja ára fresti. Að þessu sinni var hann í Finnlandi og fulltrúar fundarins þaðan, frá Noregi, Danmörku, Færeyjum og Íslandi, alls um 20 manns. Markmið fundarins er að ræða hvernig best sé að standa að samstarfinu og ræða ýmisleg sameiginleg málefni og stefnu. Meðal þess sem nú var rætt var framkvæmd og stefna í þróunarmálum, guðfræðilegar áherslur í því sambandi og tengsl þróunarstarfs og boðunarstarfs. Norðmenn kynntu umfangsmikla rannsókn um uppvöxt og aðstæður kristniboðabarna og sögðu frá fundum og ráðstefnum sem haldin hafa verið í framhaldinu og verða áfram á komandi vikum. Loks var þó nokkur umræða um stefnumörkun fram til ársins 2020. NLM er sér mjög meðvitað um að beina starfskröftum sínum og fjármunum inn á svæði þar sem fáir eru kristnir og lítið um kirkjur. Á næstu 10 árum á að færa nýtingu fjármagns til starfs á slíkum svæðum í mun ríkari mæli en nú er. SÍK hefur notið góðs samstarfs við NLM í áratugi og losnað við að þurfa að halda úti eigin skrifstofu í þeim löndum sem starfað hefur verið í. Skrifstofur NLM hafa séð um ýmis mál, s.s. landvistarleyfi, ökuskírteini, flutning farangurs, tollmeðferð, saminga við sjúkrahús og tryggingafélög, bílamál og viðhald þeirra svo eitthvað sé nefnt. |


