Kristniboðssambandið


Aðalfundur á laugardag PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 13:40

Starfsskýrsla stjórnar 2010Aðalfundur Kristniboðssambandsins verður haldinn laugardaginn 15. maí í Kristniboðssalnum, Miðbæ við Háaleitisbraut. Fundurinn er öllum opinn en atkvæðisrétt hafa einstaklingsaðilar og félagar í aðildarfélögum sambandsins sem greitt hafa árgjald liðins árs. Dagskráin hefst með hugleiðingu Skúla Svavarssonar kristniboða og sambæn kl. 9:30. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast um kl. 10 og halda áfram með hádegishléi og mat kl. 12:15-13. Aðalfundarstörf eru sem hér segir:  Kosning fundarstjóra og ritara. Skýrsla stjórnar, skýrslur aðildarfélaga og reikningar. SÍK og Þjóðkirkjan – stefnumörkun. Nýtt starfssvæði: Japan. Einkunnarorð SÍK. Kosning í stjórn (tveir til þriggja ára). Kosning í varastjórn (tveir til eins árs). Kosning tveggja skoðunarmanna. Ákvörðun árgjalds og önnur mál. Starfsskýrsla stjórnar er komin hér inn á síðuna og verður henni dreift prentaðri á fundinum.

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni