Kristniboðssambandið


Flutningur SÍK og Basarsins í Austurver PDF Prenta Senda
Höfundur: Agnes T.   
Miðvikudagur, 21 Apríl 2010 16:58

Nú á föstudag (23. apríl) og laugardag (24. apríl) ætlum við að flytja skrifstofu okkar og Basarinn á nýja staðinn í Austurveri. Okkur vantar því margar fúsar hendur til að legja okkur lið. Getur t.d. raðað í kassa, flutt kassa, raðað í hillur, keyrt flutningabíl, eða lagt til flutningabíl og. fl.? Af þessari lýsingu að dæma geta allir gert eitthvað sem hjálpar okkur.

 

Dagskráin verður þannig:

Föstudag 23. apríl

Kl. 17.00: Flytja hillur og kassa (sumir geta pakkað bókum)

kl. 19.30: Matur fyrir sjálfboðaliða í nýjum kaffisal SÍK í Austuveri

kl. 20.00: Flutningi lýkur

 

Laugardag 24. apríl

Kl. 10.00: Flutningur hefst

kl. 12.30: Matur fyrir sjálfboðaliða í nýjum kaffisal SÍK í Austuveri

kl. 14.00: Flutningi lýkur

 

Endilega láttu vita hvort þú getur hjálpað til hjá Sigga Bjarna í síma 848 7142 sem fyrst hvort sem þú getur hjálpað á föstudag eða laugardag.

 

Þegar við fluttum lagerinn í lok mars myndaðist skemmtileg stemning og samfélag en þá vorum við 22 sem tókum þátt. Hlökkum til að heyra í þér!  

 

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni