| Mikill vöxtur í starfinu í Pókot |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Laugardagur, 20 Mars 2010 18:37 |
|
Framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins hefur verið önnum kafinn að ferðast á milli staða í Pókothéraði í Keníu og að hitta fólk. Má segja að hver taki við af öðrum. Heimsóknin hefur verið mjög gefandi og stórkostlegt að sjá hvernig starfið vex og vex og að forsvarsfólk starfsins vex með starfinu. Sérlega ánægjulegt hefur verið að hitta fólk sem hefur verið trúfast í starfinu öll árin. Á miðvikudag var farið langa leið hér inn á fjöllin m.a. til að skoða framhaldsskóla sem byggður var fyrir fjármuni frá Íslandi. Á mánudag liggur leiðin fyrst til Nairobi og um kvöldið þaðan til Eþíópíu. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.



