Kristniboðssambandið


Á ferðinni í Afríku PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Mánudagur, 15 Mars 2010 18:47

Framkvæmdastjóri SÍK hélt til Keníu i liðinni viku og hefur undanfarna daga setið ársfund norrænu kristniboðanna í Austur-Afríku. Á fundinum, sem haldinn var í Nairobi, var starfið í heild sinni rætt og horft til framtíðar. Þar fyrir utan voru biblíulestrar og samverur ýmiss konar fyrir börn og fullorðna. 

Á morgun, þriðjudag, liggur leiðin til Pókot ásamt þeim Fanneyju, Fjölni, strákunum þeirra og sjálfboðaliðanum Kristínu Ingu. Ætlunin er að heimsækja Kara-Pókot, funda með forystusveit kirkjunnar og heimsækja gamla vini í Pókothéraði. Á mánudag liggur svo leiðin aftur til Nairobi og þaðan beint til Eþíópíu. Þar á að hitta íslensku kristniboðana, heimsækja skrifstofur kirkjunnar og ræða við norska samstarfsaðila. Ferðinni lýkur með heimkomu 27. mars en vonandi hægt að koma með nánari fréttir eftir því sem fram vindur. 

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni