Kristniboðssambandið


Kristniboðsvika 2010 "Höldum fast við Jesú" PDF Prenta Senda
Höfundur: Agnes T.   
Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 15:35

Kristniboðsvika 2010 verður frá sunnudegi 28. feb. til sunnudags 7. mars og verður helguð kristilegu sjónvarpstöðinni SAT-7, sem sendir út dagskrá til 15 landa í Mið-Austurlöndum og Norður-Afriku. Gestur vikunnar er John Steinar Dale, prestur í Noregi og fulltrúi SAT-7.
Hugleiðingar samkomanna tengjast yfirskrift vikunnar "Höldum fast við Jesú".
Ekki missa af einstöku tækifæri til að fræðast um SAT-7 og Mið-Austurlönd!

Dagskrá vikunnar:
Sunnudagur 28. feb kl. 20
. - "Drottinn veitir kraft hinum þreytta".
Samkoma í húsi KFUM og K, á Holtavegi 28.
Frásaga frá Eþíópíu og myndband frá Keníu.
Hugleiðing: Karl Jónas Gíslason.
KRUNG hópurinn verður með kökubasar eftir samkomu. Söluborð með bókum o.fl.

Mánudagur 1. mars kl. 16 - Fyrirlestur J.S. Dale og umræður.
Í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð.
"Eigum við að óttast íslam? Hvað getum við lært af Mið-Austurlöndum?"

Þriðjudagur 2. mars kl. 20 - "Andlegir fjársjóðir í trúnni".
AD KFUK samkoma á Holtavegi 28.
J.S. Dale: "Líf kristinna kvenna í Mið-Austurlöndum".
Hugleiðing: Sr. María Ágústsdóttir.
Kaffi og kökur eftir samkomu. Söluborð.

Miðvikudagur 3. mars kl. 20 - "Greiðið veg Drottins".
Samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60 3. hæð.
J.S. Dale: "Almenn kynning á SAT-7 og viðbrögðum áhorfenda".
Hugleiðing: Bjarni Gíslason.
Kaffi og með því eftir samkomu. Söluborð.

Fimmtudagur 4. mars kl. 20 - "Þolgæðis hafið þið þörf".
AD KFUM samkoma á Holtavegi 28.
J.S. Dale: "Hvaða erfiðleika glímir kristið fólk í Mið-Austurlöndum við og hvernig getur SAT-7 hjálpað því?"
Hugleiðing: Ragnar Schram.
Kaffi og kökur eftir samkomu. Söluborð.

Föstudagur 5. mars kl. 20.30 - "Ungt fólk í Mið-Austurlöndum"
KSS/Kristskirkju samkoma í húsi KFUM og K, á Holtavegi 28.
J.S. Dale talar.
Sjoppa og söluborð eftir samkomu.

Laugardagur 6. mars - Akureyri
Samkoma og kynning. J.S. Dale.

Sunnudagur 7. mars kl. 17 - "Guð varð mér til hjálpræðis"
Samkoma í Lindakirkju (Kópavogi).
J.S. Dale talar um "Framtíð SAT-7 og hlutverk stuðningsaðila" og flytur hugleiðingu.
Lindakirkjukór syngjur.
Veitingar eftir samkomu. Söluborð.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni