|
Höfundur: Kristín Bjarnadóttir
|
|
Mánudagur, 15 Febrúar 2010 15:17 |
|
Prédikaranámskeiðið búið Nemendurnir sem hér hafa verið á prédikaranámskeiði síðustu fimm vikur eru á förum heim til sín. Námskeiðið er fimm vikur á ári í fjögur ár – þó sumir hafi ekki lokið grunnskólanámi. Líklega er þetta líkt og var hjá biskupunum Ísleifi Gissurarsyni og Jóni Ögmundssyni í upphafi kristni á Íslandi og um Teit Ísleifsson var sagt að hann kæmi sínum nemendum öllum til nokkurs þroska. Ætli það sé ekki okkar von hér líka. Kirkjan er ung og burðarlítil í mörgu, en kenningin virðist þó heilnæm hjá þeim í flestu. Því veldur boðunin í upphafi frá kristniboðunum, sem hér hafa starfað: einföld og skýr boðun um hjálpræðið í Kristi Jesú, hver hann var og hvað hann vildi mönnunum. Prédikararnir snúa til síns heima. Þeir hafa að litlum efnum að hverfa. Hafa smá skika til að lifa af þar sem best lætur, og engin fá þeir launin fyrir forstöðu safnaða sinna, kannski heldur ekki full vinna. En prestarnir hafa einnig flestir lítil sem engin laun. Þar af leiðandi er lífsbjörgin í mesta basli hjá þeim. Ein prestslaun af Íslandi dygðu þeim öllum 25 og biskupinum líka. Svona er nú misskipt gæðunum.
|