Kristniboðssambandið


Frímerkjasöfnunin gekk vel PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Mánudagur, 08 Febrúar 2010 14:58

Samstarfsverkefni Kristniboðssambandsins og Póstsins um söfnun á notuðum frímerkjum er nú lokið. Heiti verkefnis var: Hendum ekki verðmætum! Söfnunin stóð til 31. janúar 2010 og var tekið við frímerkjum og umslögum á öllum póstafgreiðslum Póstsins um land allt.

 

Áætlað verðmæti þess sem safnaðist í átakinu er um 1,2 milljón krónur en á sama tíma í fyrra safnaðist efni fyrir um 300.000 kr. Kristniboðssambandið vill gjarnan þakka öllum sem gáfu frímerki til þróunarstarfs á sviði menntunar barna, unglinga og fullorðinna í Eþíópíu og Keníu. Frímerkjum er áfram veitt móttaka allan ársins hring á skrifstofu SÍK, Grensásvegi 7, 2. hæð og í Litla húsinu, Glerárgötu 1, Akureyri.

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni