Kristniboðssambandið


Ný bók - Konan með opna faðminn PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Fimmtudagur, 05 Maí 2011 12:44

imma-kapanBókaútgáfan Salt ehf hefur gefið út bókina Konan með opna faðminn. Lífshlaup og æviminningar Immu á Hernum. Bókin er gefin út í samstarfi við Hjálpræðisherinn á Íslandi en Ingibjörg Jónsdóttir brigader, öðru nafni Imma, lifði og starfaði innan Hersins frá unga aldri og þjónaði honum á Íslandi, Danmörku og Noregi ásamt Óskari Jónssyni brigader.

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir  guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur talaði við fjölda fólks til þess að fá eins heilsteypta mynd og kostur var af lífshlaupi og starfi Immu. Afraksturinn birtist í bókinni í lifandi og persónulegri frásögn.

Bókin kemur út í dag þegar 90 ár eru liðin frá fæðingu Immu, en hún lést í gær á fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Minningarsamkoma verður á Hjálpræðishernum á Akureyri á morgun, föstudaginn 6. maí kl. 17 þar sem bókin verður kynnt og útgáfu hennar fagnað.

Bókin er til sölu á afgreiðslu Salts ehf og Basarnum, Austurveri, Háaleitisbraut 68 og mun á næstu dögum fást einnig hjá Hjálpræðishernum, í Kirkjuhúsinu  og Glætunni við Laugaveg og í helstu bókaverslunum landsins.

Bókin er 220 bls, þar af 16 ljósmyndasíður.

Bókin kostar 5.000 krónur.

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni