Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim Fréttir Almennar fréttir Kristnir menn drepnir í Egyptalandi
Kristnir menn drepnir í Egyptalandi PDF Prenta Senda
Höfundur: Kristín Bjarnadóttir   
Fimmtudagur, 07 Janúar 2010 16:57

Milljónir kristinna manna í koptísku kirkjunni í Egyptalandi fögnuðu fæðingu frelsarans 6. janúar en þá eru jól hjá þeim samkvæmt tímatali þeirra. Óþekktur árásarmaður hóf skothríð á kirkjugesti að lokinni guðsþjónustu í Naga Hammadi, bæ skammt frá borginni Luxor. Sex menn voru drepnir, þar af lögregluþjónn, og sjö slösuðust í skotárásinni. Árásir á kristið fólk í Egyptalandi hefur aukist undanfarin ár.

David Harder, starfsmaður SAT-7 sjónvarpsstöðvarinnar, segir þetta skelfilega árás á kristið fólk á helgasta degi ársins og biður fólk að minnast aðstandenda þeirra í bæn.

Árásir á kristið fólk á jólum hafa verið gerðar á fleiri stöðum en í Egyptalandi. 24. desember var gerð sprengjuárás á kirkju í bænum Mósúl í Írak. Þar létust tveir og fimm slösuðust. SAT-7 leggur áherslu á að auka skilning á milli múslima og kristinna manna svo þeir geti búið í sátt og samlyndi. David hvetur kristna menn um allan heim að biðja fyrir fórnarlömbunum og fjölskyldum þeirra. Einnig biðja Guð um að þessir hörmulegu atburðir megi leiða eitthvað gott af sér.

Nánar á: www.sat7.org

 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011