Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
| Tvær góðar bækur |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Miðvikudagur, 12 Nóvember 2008 14:57 |
|
Salt ehf gefur einnig út bókina Dauðinn, sorgin og vonin sem kemur út nú á föstudag. Höfundur missti fjögurra manna fjölskyldu í flóðbylgjunni miklu á annan dag jóla 2004. Hann lýsir reynslu sinni, glímu sinni við efa og spurningar og bendir á þá von sem hefur orðið honum til hjálpar. Höfundurinn, Flemming, Kofod-Svendsen, er prestur og fyrrum ráðherra í Danmörku. Bókin hefur komið út í fjölda upplaga og kom m.a. út í Noregi í haust. Íslenska útgáfan er 160 bls, innbundin og kostar kr. 3.290 en fæst á forlagsverði á skrifstofu Kristniboðssambandsins og afgreiðslu Salts á Grensásvegi 7. |



Útgáfufélagið Salt ehf sem er í eigu Kristniboðssambandsins gefur nú á haustmánuðum út tvær bækur. Önnur er Fimm táknmál ástarinnar eftir Gary Chapman, þekktan ráðgjafa á sviði hjónabands og uppeldis. Bókin er alþjóðleg metsölubók sem útskýrir á einfaldan hátt fimm aðaltákmál ástarinnar og hjálpar lesendum að átta sig á eigin táknmáli og makans - en mikilvægt er að hvor aðili fyrir sig í sambandi tali það táknmál sem hinn á auðveldast með að meðtaka og skilja, svo að ástartjáningin komist til skila og efli sambandið. Í bókinni eru tekin ótal dæmi og þar eru hagnýtar leiðbeiningar um að nýta sér hana sem best. Bókin er 168 bls, innbundin og kostar kr. 3.290 en fæst á forlagsverði, kr. 2.900, á skrifstofu Kristniboðssambandsins og afgreiðslu Salts, Grensásvegi 7. 