Aðalvalmynd
Dagskrá
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
20.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
22.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
| Helgin helguð baráttu gegn fátækt víða um heim |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Föstudagur, 17 Október 2008 12:01 |
|
Í gær var alþjóðlegi matvæladagur Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kom að hungur er enn mjög útbreitt vandamál víða um heim og að hækkandi verð á matvælum á árinu geri þeim sem varla hafa til hnífs og skeiðar enn erfiðara fyrir en áður. Hungruðu fólki hefur því fjölgað til muna. Nú um helgina er ætlunin að minna á loforðin sem gefin voru árið 2000 um að útrýma fátækt heimsins fyrir árið 2015. Við erum rúmlega hálfnuð á þeirri leið og enn er mjög langt í mark. Ýmsir óttast að fjármálakreppan sem nú herðir að um allan heim verði til þess að dregið verði úr áherslunni á að vinna gegn fátækt samkvæmt settum markmiðum. Hætta er á að fólk gleymi þeim mikla vanda sem er í mörgum löndum heims sem eru miklu mun alvarlegri en þau vandamál sem hinar ríku þjóðir heims ganga nú gegnum. Bono, Tutu, erkibiskup og Martin Luther King, þriðji, ganga til liðs við milljónir manna sem krefjast þess að ráðamenn heims standi við loforð sem gefin voru á Þúsaldarleiðtogafundinum árið 2000. Búist er við að meir en 67 milljónir manna taki þátt í aðgerðum sem hefjast í dag undir vígorðinu „Rísum upp og grípum til aðgerða.“ Ýmiss konar viðburðir verða haldnir um allan heim þar sem leiðtogar ríkja veraldar verða hvattir til að nota ekki fjármálakreppuna sem afsökun fyrir því að svíkja loforðin sem gefin voru árið 2000 um að ná Þúsaldarmarkmiðunum. Alls staðar mun fólk rísa á fætur til að krefjast með táknrænum hætti að sárafátækt í heiminum verði upprætt. Baráttuhreyfingunni til stuðnings Þúsaldarmarkmiðunum hefur vaxið mjög fiskur um hrygg. Á síðasta ári tóku 43 milljónir manna þátt í átakinu Rísum upp gegn fátækt (Stand up against poverty). Búist er við að í ár rísi 67 milljónir manna, eða 1 prósent jarðarbúa, upp gegn fátækt. „Ef þið viljið sýna samstöðu með hinum fátækustu og þeim sem standa höllustum fæti, þá hafið þið nú tækifæri til að rísa upp,“ segir söngvari U2, baráttumaðurinn Bono. „Þið verðið í góðum félagsskap 60 milljóna manna sem telja að við getum ekki svikið loforð okkar þótt tímarnir séu erfiðir.“ Bono hefur á undanförnum árum hvatt kirkjur heims til að vera í fararbroddi þess að fátækt sé útrýmt. Sem dæmi má nefna að 1.4 milljarður manna lifir á minna en 1.25 Bandaríkjadal á dag og að ein kona deyr á hverri mínútu á meðgöngu og af barnsförum. Fyrir hvern einn Bandaríkjadal sem þróunarríki fær í þróunaraðstoð, fer fjórðungur eða 25 sent í að standa undir afborgunum af erlendum lánum. Sjá nánar á http://www.standagainstpoverty.org/en/node/878 (Byggt á m.a. upplýsingum frá Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa SÞ.) |



