Dagskrá

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

20.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

22.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim Fréttir Almennar fréttir Kristið fólk í Írak ofsótt - biður um fyrirbæn
Kristið fólk í Írak ofsótt - biður um fyrirbæn PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Fimmtudagur, 16 Október 2008 12:44

Undanfarna dag hafa borist fréttir af fólki sem myrt hefur verið í bænum Mosul í norðurhluta Írak. Sjö kristnir einstaklingar voru teknir af lífi og um 3000 manns, kristið fólk, hefur flúið borgina vegna mikils þrýstings, hótana og ofsókna frá öfgasinnum. Fréttir hafa einnig borist af því að heimili kristins fólks hefur verið sprengt í loft upp og miðum dreift þar sem kristnu fólki er hótað illu snúi það sér ekki til islam eða greiði jzya, sérstakan skatt sem staðfestingu á því að það sé annars flokks borgarar.
Áhorfendur SAT-7 sjónvarpsstöðvarinnar hafa sent smáskilaboð og beðið um fyrirbæn. SAT-7 sendir út áskorun þess efnis og birtir einnig boðskap á arabísku frá Yonhana Ibrahim, erkibiskupi sýrlensku réttrúnaðarkirkjunnar: „Orð mín eru hjartfólgið kall bróðurelsku, umvafið kenningu frá himnum, að endir verði gerður á hræðilegum drápum á kristnu fólki í Írak. Höldum á lofti réttinum til að lifa saman í friði eigin heimalandi.“ SAT-7Sjónvarpsstöðin hefur einnig fengið bréf frá forstöðumanni kirkju einnar í Írak segi segir: Við sendum SOS bæn til þess að hryðjuverkamennirnir sem halda að þeir séu að vinna verk Guðs mættu vakna upp og læra að þekkja hinn sanna Guð. Við biðjum einnig um að hin kristnu færist nær Jesú, og fyrir öllum þeim fjölskyldum sem misst hafa ástvini sína, heimili og peninga, að við gleymum því aldrei, sama hverju við töpum að við eigum ákveðinn stað sem Jesús bjó okkur á himnum. Hann hvatti fólk til að taka þátt í þriggja daga bæn og föstu vegna ástandsins.
Yfirvöld segjast hafa sent aukinn liðstyrk lögreglu til að halda uppi lögum og reglu.

SAT-7 er samkirkjuleg sjónvarpsstöð sem rekin er af og fyrir fólk í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Stöðin miðlar boðskap vonar til íbúa svæðisins með þrem rásum, á arabísku, farsi (Íran) og fyrir börn. Markmiðið er að efla og styrkja kirkjurnar sem starfa á svæðinu. Kristniboðssambandið er aðili að SAT-7.

 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011