GLS ráðstefnan 2011 verður haldin í Salnum í Kópavogi dagana 4.-5. nóvember.
Geta leiðtogar bætt sig og náð meiri árangri? Er hætta á að leiðtogar staðni eða brenni út? Er ég leiðtogi þótt ég hafi engan leiðtogatitil? GLS ráðstefnan er frábært tækifæri til að svara þessum spurningum.
Skráning er hafin á GLS 2011. GLS leiðtogaráðstefnan hefur fest sig í sessi hér á landi og verður ráðstefnan að þessu sinni haldin í Salnum í Kópavogi dagana 4.-5. nóvember. Á vefsíðu ráðstefnunnar er hægt að kynna sér fyrirlesara þessa árs og skrá sig.
Á þjóðhátíðardegi Íslendinga bjóða kristin trúfélög til sameiginlegrar bæna- og samverustundar í Hallgrímskirkju. Beðið verður fyrir landi og þjóð, forystufólki og fjölskyldum, atvinnulífi og einingu. Meira...
Bókaútgáfan Salt ehf hefur gefið út bókina Konan með opna faðminn. Lífshlaup og æviminningar Immu á Hernum. Bókin er gefin út í samstarfi við Hjálpræðisherinn á Íslandi en Ingibjörg Jónsdóttir brigader, öðru nafni Imma, lifði og starfaði innan Hersins frá unga aldri og þjónaði honum á Íslandi, Danmörku og Noregi ásamt Óskari Jónssyni brigader.
Sigríður Hrönn Sigurðardóttir guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur talaði við fjölda fólks til þess að fá eins heilsteypta mynd og kostur var af lífshlaupi og starfi Immu. Afraksturinn birtist í bókinni í lifandi og persónulegri frásögn.
Bókin kemur út í dag þegar 90 ár eru liðin frá fæðingu Immu, en hún lést í gær á fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Minningarsamkoma verður á Hjálpræðishernum á Akureyri á morgun, föstudaginn 6. maí kl. 17 þar sem bókin verður kynnt og útgáfu hennar fagnað.