| Mikið um að vera í Pókothéraði |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Föstudagur, 21 Október 2011 15:16 |
|
Nóg er um að vera í Pókothéraði í Keníu. Sunnudaginn 30. október verður nýr biskup vígður, en hann er einn af elstu prestum kirkjunnar og heitir Samson Lokipuna. Einnig stendur yfir umfangsmikil endurskoðun á fjármálum kirkjunnar eftir að í ljós kom að fjármunir sem voru hugsaðir eða fráteknir fyrir ákveðin verkefni voru notaðir til að koma af stað kennaraskóla í Chesta. Hefur Jón Fjölnir Albertsson verið á kafi vegna þess máls. Loks má geta þess að kristniboðarnir okkar Skúli Svavarsson og Kjellrun Langdal hafa verið önnum kafin við kennslu, sálgæslu og ráðgjöf í nokkrar vikur, bæði í Kapenguria og eins víða um héraðið. Þá eru systkinin Besty Halldórsson og séra Frank M. Halldórsson einnig í Kapenguria. Hún sinnir kennslu og hann kynnir sér starfið og tekur þátt í því eftir því sem tækifæri gefast. |
| Síðast uppfært Þriðjudagur, 15 Nóvember 2011 16:30 |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.




