|
Höfundur: Ragnar Gunnarsson
|
|
Miðvikudagur, 07 September 2011 11:28 |
|
Málshátturinn margar hendur vinna létt verk átti svo sannarlega við í gær þegar um 30 sjálfboðaliðar frjálsra félagasamtaka sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu komu saman til að pakka 5000 eplum í taupoka sem saumaðir voru í Úganda. Verkefnið er samstarf átta félagasamtaka og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um að kynna þróunarmál fyrir almenningi á Íslandi. Í dag verður eplunum svo dreift á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri undir yfirskriftinni: Þróunarsamvinna ber ávöxt.
Með eplunum fylgja upplýsingar um þann árangur sem náðst hefur með þróunarsamvinnu á síðustu árum. Upphaflega stóð til að prenta þessar upplýsingar á bréfpoka, en kostnaður við það þótti of hár. Í staðinn voru félagasamtök í Úganda sem starfa að uppbyggingu samfélagsins í fimm þorpum þar sem stuðlað er að betri menntun, fullorðinsfræðslu, heilsugæslu og ræktun fengin til verksins og varð því saumaskapurinn þeirra í raun sjálfstætt þróunarverkefni sem gefur þessu kynningarátaki sérstakan lit og undirstrikar gildi þróunarsamvinnu. Pokarnir eru svo í sjálfu sér fallegir minjagripir nýta má til ýmissa hluta. Eplunum verður dreift miðvikudaginn 7. september milli kl. 16.00-18:00 í Kringlunni, Smáralind, Mjóddinni, Laugum, Firði Hafnarfirði og á Akureyri í sundlauginni og á Glerártorgi. Sjálfboðaliðar samtakanna ásamt þjóðfrægu fólki munu sjá um dreifinguna á eplunum og boðskapnum. Kristniboðssambandið ber ábyrgð á dreifingunni við Laugar. Frjálsu félagsamtökin sem taka þátt í verkefninu með ÞSSÍ auk Kristniboðssambandsins, eru Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill, UNICEF, UN Women, SOS barnaþorp og ABC barnahjálp.
|
|
Síðast uppfært Fimmtudagur, 08 September 2011 10:32 |