Kristniboðssambandið


Þróunarsamvinna ber árangur PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Föstudagur, 02 September 2011 15:09

throunnarFrjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að kynningu á þróunarmálum í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands vikuna 5.-7. september. Markmiðið er að auka skilning og þekkingu almennings á málefnum þróunarlanda og vekja Íslendinga betur til vitundar um samfélagslegar og siðferðilegar skyldur þjóðarinnar í baráttunni gegn fátækt í heiminum.


Til að vekja athygli á málaflokknum munu félagasamtökin dreifa eplum á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri miðvikudaginn 7. september undir yfirskriftinni: Þróunarsamvinna ber ávöxt. Auk ávaxtarins fær fólk í hendur upplýsingar í stuttu máli um árangur sem náðst hefur með þróunarsamvinnu á síðustu árum.

Fimmtudaginn 8. september verður málþing um þróunarsamvinnu á Háskólatorgi í Háskóla Íslands sall 102, kl. 12:00-13:00. Fundarstjóri verður Regína Bjarnadóttir formaður stjórnar UN Women á Íslandi og fundarmenn, Jón Kalman rithöfundur, Helga Þórólfsdóttir friðarfræðingur og Engilbert Guðmundsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ.

Frjálsu félagsamtökin sem taka þátt í verkefninu með ÞSSÍ eru Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill, UNICEF, UN Women, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, SOS barnaþorp og ABC barnahjálp.

Síðast uppfært Miðvikudagur, 05 Október 2011 11:42
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni