Kristniboðssambandið


Skrifstofur SÍK flytja í byrjun nóvember PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Miðvikudagur, 31 Ágúst 2011 15:50

Stjórn Kristniboðssambandsinshefur ákveðið að flytja skrifstofur samtakanna á hæðina fyrir neðan Kristniboðssalinn, Háaleitisbraut 58-60 í 145 fm húsnæði sem þar keypt í vor. Upprunalega var húsnæðið keypt til að leigja það út til að byrja með en eftir útreikninga á hugsanlegri leigu annars vegar og hvað stækkaður nytjamarkaður (Basarinn) gefur af sér hins vegar, var ákveðið að stíga þetta skref þar sem það muni væntanlega gefa meira af sér.

Þar með verður auðveldara að halda skrifstofu og Basarnum aðgreindum, sem stundum hefur verið vandamál, að stækka Basarinn og bæta vinnuaðstöðu fyrir þau sem yfirfara vörur og verðleggja. Starfsmenn SÍK munu áfram tengjast Basarnum en vonin er auðvitað sú að unnt sé að halda honum opnum sem mest með sjálfboðaliðum. Áætlað er að undirbúningur taki um tvo mánuði vegna breytinga sem gera þarf á húsnæðinu. Með þessu eignast SÍK góða skrifstofuaðstöðu í sama stigagangi og Kristniboðssalurinn er sem jafnframt er í aðeins rúmlega 500 metra fjarlægð frá Basarnum og mjög miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu. Auglýst er eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða við breytingar, parketlagningu, málningu og fleira hluta úr laugardegi eða kvöldstund. Hafið gjarnan samband í síma 533 4900 eða sendið póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það .

Síðast uppfært Fimmtudagur, 01 September 2011 11:06
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni