| Söfnun vegna neyðarhjálpar |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Þriðjudagur, 30 Ágúst 2011 10:06 |
|
Stjórn SÍK samþykkti í síðustu viku hefja söfnun til bágstaddra á horni Austur-Afríku vegna hungurs og langvarandi þurrka. Framkvæmdin verður í samstarfi við systursamtök okkar í Noregi, NLM, sem einnig hafa hafið söfnun. Samkvæmt skýrslu fulltrúa þeirra er ástandið í suðausturhluta Eþíópíu víða hrikalegt, ekki síst þar sem flóttafólk hefur streymt að frá Sómalíu en svæðin bera ekki fleira fólk án utanaðkomandi aðstoðar. Ákveðið verður í samráði við Norðmenn hvort hjálpin verður nýtt Eþíópíumegin eða Keníumegin í samstarfi við samstarfsaðila okkar í þessum löndum. Samþykkt var að senda alla vega eina milljón króna til verkefnisins. Hagnaður af sölu á Basarnum í september mun m.a. renna til þessa verkefnis. Neyðarsöfnunarreikningurinn er nr. 0117-26-009000, kt. 550269-4149. |
| Síðast uppfært Þriðjudagur, 01 Nóvember 2011 22:36 |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.




