| Húsnæðiskaup |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Miðvikudagur, 01 Júní 2011 14:01 |
|
SÍK hefur fest kaup á 145 fm skrifstofuhúsnæði á miðhæðinni, fyrir neðan Kristniboðssalinn, Háaleitisbraut 58-60. Kaupverð er 18 milljónir þar sem 11,3 milljónir eru greiddar út en afgangurinn á þremur árum. Stjórnin telur þetta styrkja grunnstoðir starfsins og fjárhag Sambandsins til frambúðar og kynnti málið á aðalfundinum 14. maí sl. Kaupin eru fjármögnuð með hluta af varasjóði sem geymdur hefur verið á bankareikningi. Stjórnin mun á fundi sínum 14. júní ræða notkun eða hugsanlega leigu plássins alls eða hluta þess. Verið er að skoða nokkra möguleika í því sambandi, m.a. að stækka rými Basarsins og að flytja skrifstofuaðstöðu einhverra starfsmanna á nýjan stað. Allar tillögur og ábendingar eru vel þegnar. Íslandsbanki er með húsnæðið í leigu út ágúst. Í framtíðinni býður þetta upp á samnýtingu Kristniboðssalar og þessa húsnæðis á 2. hæð.
|
| Síðast uppfært Fimmtudagur, 07 Júlí 2011 11:08 |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.



