| Námskeið um tjaldgjörðarstarf |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Þriðjudagur, 24 Maí 2011 12:28 |
|
Þriðjudaginn 7. júní, kl. 18-22 (með hléi fyrir mat og hressingu) heldur Kristniboðssambandið námskeið um það sem kallast tjaldgjörðarstarf í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Kostnaður er 1.000 krónur og boðið verður upp á hressingu eða léttan málsverð.
Leiðbeinandi: Ari Rocklin, framkvæmdastjóri GLOBAL Opportunities í Kanada og sérfræðingur í „tjaldgjörðarstarfi“.
GLOBAL Opportunities eru samtök sem kynna tjaldgjörðarstarf fyrir kristnu fólki, þjálfar það og gerir því kleift að vinna í öðrum heimshlutum sem „tjaldgjörðarmenn“. Hvað er „tjaldgjörðarstarf“? Hugtakið vísar í reynslu Páls postula sem sagt er frá í Postulasögunni, 18. Kafla, en Páll sá fyrir sjálfum sér með vinnu sem tjaldgjörðarmaður þegar hann fór um, vitnaði og prédikaði. Nú á dögum er „tjaldgjörðarstarf“ árangursrík leið til að ástunda kristniboð. Það opnar kristnu fólki leið að nota sérfræðiþekkingu sína og um leið að ná til þjóðanna með fagnaðarerindið um Krist. Ari Rocklin mun halda kynningarnámskeið hér á landi en hann kemur hingað frá Bergen þar sem hann mun kenna á nokkurra daga löngu námskeiði. Hann bauðst til að koma hingað til lands á leið sinni heim. Ari Rocklin er eftirsóttur sem ræðumaður og fræðari á ráðstefnum og í biblíuskólum víða um heim. Hann nær að hrífa fólk með sér og hvetja það til dáða. Hann er einnig ráðgjafi Alfa-námskeiðanna sem hafa þróað sérstakt Alfa-námskeið til notkunar á vinnustöðum. Þetta er einstakt tækifæri til þess að kynnast betur heiminum og nýjum leiðum til að taka þátt í kristniboðsstarfi. Á námskeiðinu verður tækifæri til að spyrja spurninga. Námskeiðið fer fram á ensku en reynt verður að bjóða upp á túlkun ef þess verður þörf.
Skráning er með tölvupósti á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það eða í síma 533 4900. Verið velkomin!
|
| Síðast uppfært Sunnudagur, 19 Júní 2011 13:51 |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
Póstlisti SÍK
Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.



