Kristniboðssambandið


Aðalfundur á laugardag PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Þriðjudagur, 10 Maí 2011 17:44

Aðalfundur SÍK verður haldinn á laugardaginn kemur og hefst með hugleiðingu Kristjáns Þórs Sverrissonar og sambæn kl. 9:30. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10:00. Á dagskrá er val á fundarstjóra og fundarritara, skýrsla stjórnar og reikningar liðins árs, skýrslur aðildarfélaga, kosning í stjórn og kosning skoðunarmanna auk ákvörðunar árgjalds. Kristniboðarnir Karl Jónas Gíslason og Ragnheiður Guðmundsdóttir munu flytja kveðjur og nýjar fréttir frá Eþíópíu, en þau komu heim á laugardaginn var. Kristín Bjarnadóttir, sem nýkomin er frá Keníu flytur kveðjur og fréttir þaðan.

Fundurinn er öllum opinn en atkvæðisrétt hafa félagsmenn aðildarfélaga og einstaklingsaðilar sem hafa greitt árgjald liðins árs.

Skýrsla starfsins verður sett hér inn á vefinn á morgun og einnig dreift prentaðri á fundinum.

Síðast uppfært Miðvikudagur, 18 Maí 2011 14:51
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni