Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim Fréttir Fréttir um SÍK Kristniboðsmót á Löngumýri 16.-18. júlí
Kristniboðsmót á Löngumýri 16.-18. júlí PDF Prenta Senda
Höfundur: Agnes T.   
Mánudagur, 31 Maí 2010 14:14

Mótið hefst föstudaginn 16. júlí kl. 21.00 og því lýkur sunnudaginn 18. júlí klukkan rúmlega 15.

Lögð verður áhersla á gott samfélag um Guðs orð og kynningu á kristniboði. Á milli samverustundanna verður gott tækifæri til að spjalla saman og njóta náttúrunnar í Skagafirði eða láta sér líða vel í heita pottinum á Löngumýri.

Í nágrenni Löngumýrar er fyrirtækið Hestasport, ævintýraferðir sem býður upp á hestaferðir, klettaklifur, ýmiss konar siglingar og fleira skemmtilegt fyrir bæði börn og fullorðna.

Gott er að sameina sumarfrí á friðsælum stað og fá jafnframt góða andlega uppbyggingu. Hægt er að gista inni eða tjalda á svæðinu.

Fjöllbreytt dagskrá alla helgina:

Föst. 16. júlí

Kl. 21.00: Upphafssamkoma. Agnes og Baldur Ragnarsson sjá um samkomuna.

Laug. 17. júlí

Kl. 10.00: Bibliulestur, Skúli Svavarsson.

Kl. 11.00: Umræður í smáhópum.

... frí

Kl. 17.00: Kristniboðssamvera í umsjá Kari og Jóhannesar Ólafssonar, og Agnesar og Baldurs Ragnarssonar.

Kl. 21.00: Vitnisburðar og bænasamkoma. Hugleiðing: Margrét Hróbjartsdóttir.

Sun. 18. júlí

Kl. 11.00: Guðsþjónusta í Sauðárkrókskirkju, sr. Gísli Gunnarsson og sr. Helgi Hróbjartsson þjóna og prédika.

Kl. 14.00: Kveðjusamkoma. Kari og Jóhannes Ólafsson sjá um samkomuna.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir á mótið!

Skráning fer fram á Löngumýri í síma 453 8116.

Frekari upplýsingar fást á skrifstofu Kristniboðssambandsins, Háaleitisbraut 68, s. 533 4900, netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það  

 

Síðast uppfært Miðvikudagur, 11 Ágúst 2010 15:08
 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011