Aðalvalmynd
Dagskrá
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
20.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
22.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
| Bygging kirkjunnar í Chepareria gengur vel |
|
|
|
| Höfundur: Ragnar Gunnarsson |
| Mánudagur, 19 Apríl 2010 10:12 |
|
Söfnuðurinn í Chepareria-bænum í Pókot hefur undanfarin ár látið sig dreyma um stóra og góða kirkju. Fyrir nokkrum árum var grafinn grunnur og steyptar uppistöður. Síðan gerðist lítið nema hvað stundum hafa verið sjálboðaliðar að búa til múrsteina. Í fyrra ákváðu hjónin séra Ólafur Jóhannsson og Þóra Harðardóttir að safna til byggingarinnar í tilefni af 50 ára afmælum sínum. Inn komu um 2.5 milljónir og er nú búið að byggja fyrir mikinn hluta þeirra fjármuna sem munu duga fyrir uppsteyptum veggjum og sperrum. Þá vantar fjármagn fyrir bárujárni sem reiknað er með að kosti um 1.250 þúsund íslenskar krónur. Ætlar söfnuðurinn að safna fyrir því sem unnt er í haust. Meðfygljandi mynd er af byggingunni sem sýnir stöðu mála nú í mars. Þá á eftir að sinna frágangí og fá bekki í kirkjuna. Mikill hugur er í mönnum og söfnuðurinn sendir kveðjur til allra sem átt hafa þátt í að kirkjan komist upp. |
| Síðast uppfært Mánudagur, 03 Maí 2010 12:20 |



