Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim Fréttir Fréttir um SÍK Kærar kveðjur og þakkir frá Chepareria
Kærar kveðjur og þakkir frá Chepareria PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Sunnudagur, 21 Mars 2010 17:59

Undirritaður fór ásamt kristniboðunum okkar, Fanneyju og Fjölni, til Chepareria snemma morguns. Sóttum við fyrst guðsþjónustu í kirkjunni á kristniboðsstöðinni (Propoi) kl. 9 þar sem kirkjan var full af nemendum stúlknaframhaldsskólans á staðnum. Sá skóli hefur vaxið ört og mætir áþreifanlegri þörf. Síðan skoðuðum við skólann og fengum dísætt mjólkurte. Að því loknu var önnur guðsþjónusta þar sem söfnðurinn kom saman. Við skiluðum kveðjum og fengum kveðjur og þakkir til kristniboðsvina fyrir fyrirbænir og stuðning allan við starfið.
Þá lá leiðin til Chepareria bæjar þar sem við hittum safnaðarstjórnina og starfsfólkið þar. Einnig gengum við um nýja kirkjubygginguna, þ.e. útveggina sem ná orðið upp að þeim stað sem þaksprerrur eiga að koma. Mikið hefur tekist að gera með fjármunum sem söfnuðust í tilefni af 50 ára afmælis hjónanna Ólafs Jóhannssonar og Þóru Harðardóttur. Mikill hugur er í mönnum að klára sem mest sem fyrst.
Loks héldum við upp á fjall til Tolkoghin, skoðuðum kirkjuna, hittum hluta safnaðarins (margir voru farnir heim) og hlustuðum á óskir heimamanna um forskóla, skóla fyrir yngstu bekki grunnskólans og heilsugæslu. Degi var tekið að halla er við ókum heim og komum hingað til Kapenguria, höfuðstaðar Pókothéraðs, í myrkri.
Fyrir utan ýmsar óskir voru heimamenn þakklátir fyrir starf kristniboðsins, hjálp á sviði boðunar, fræðslu og safnaðaruppbyggingar sem og skóla og aðra þá hjálp sem borist hefur. Eftir situr að fólkið er fullt áhuga og er engan veginn á því að gefast upp. Það leggur mikið á sig til að koma fagnaðarerindinu áfram og til að koma upp byggingum fyrir kirkjur og skóla á svæðinu. Kærar þakkir til ykkar sem hafið gefið og beðið. 

Ragnar Gunnarsson

Síðast uppfært Föstudagur, 02 Apríl 2010 16:29
 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011