Dagskrá

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

20.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

22.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim Fréttir Fréttir um SÍK Jakob Ágúst Hjálmarsson skrifar frá Keníu
Jakob Ágúst Hjálmarsson skrifar frá Keníu PDF Prenta Senda
Höfundur: Kristín Bjarnadóttir   
Mánudagur, 15 Febrúar 2010 15:17

Jakob Águst HjámarssonPrédikaranámskeiðið búið
Nemendurnir sem hér hafa verið á prédikaranámskeiði síðustu fimm vikur eru á förum heim til sín. Námskeiðið er fimm vikur á ári í fjögur ár – þó sumir hafi ekki lokið grunnskólanámi.
Líklega er þetta líkt og var hjá biskupunum Ísleifi Gissurarsyni og Jóni Ögmundssyni í upphafi kristni á Íslandi og um Teit Ísleifsson var sagt að hann kæmi sínum nemendum öllum til nokkurs þroska. Ætli það sé ekki okkar von hér líka. Kirkjan er ung og burðarlítil í mörgu, en kenningin virðist þó heilnæm hjá þeim í flestu. Því veldur boðunin í upphafi frá kristniboðunum, sem hér hafa starfað: einföld og skýr boðun um hjálpræðið í Kristi Jesú, hver hann var og hvað hann vildi mönnunum.
Prédikararnir snúa til síns heima. Þeir hafa að litlum efnum að hverfa. Hafa smá skika til að lifa af þar sem best lætur, og engin fá þeir launin fyrir forstöðu safnaða sinna, kannski heldur ekki full vinna. En prestarnir hafa einnig flestir lítil sem engin laun. Þar af leiðandi er lífsbjörgin í mesta basli hjá þeim. Ein prestslaun af Íslandi dygðu þeim öllum 25 og biskupinum líka. Svona er nú misskipt gæðunum.

Síðast uppfært Fimmtudagur, 25 Febrúar 2010 18:39
 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011