Kristniboðssambandið


Útvarpskristniboð - 2. hluti PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Miðvikudagur, 16 Maí 2012 15:54

Hann kom aftur í kirkjuna

Rakarinn, Paul Mureithi, fékk hjálp í gegnum útvarpskristniboð.

Útvarpskristniboðið Norea vinnur með Scripture Mission í Keníu sem eru með höfuðstöðvar á kristniboðsstöðinni Voi þar sem þeir reka eigin útvarpsstöð í samvinnu við TWR (Trans World Radio).

Einn áheyrandi útvarpsstöðvarinnar, Paul Mureithi, rakari, kom aftur í kirkjuna eftir að hafa hlustað á útvarpsstöðina.

„Mér þótti vænt um að þjóna í kirkjunni en hætti. Svo heyrði ég í útvarpinu að löngun manns til að þjóna Guði dæi aldrei. Það hafði áhrif á mig. Ég snéri því aftur í kirkjuna og fór að þjóna Guði", segir rakarinn sem er með eigin rakarastofu í bænum Voi.

Útvarpsstöð Scripture Mission tengist sjö útvarpsstöðvum og nær til þriggja milljóna manna með daglegar útvarpssendingar. Þrátt fyrir að fagnaðarerindið hafi náð til fleiri í Keníu en öðrum Afríkuríkjum eru þar enn þjóðflokkar sem aldrei hafa heyrt hinn kristna boðskap.

(Norea, Informasjonsblad fra Norea Mediemisjon nr.1/2012)

 
Fjáröflunarsamkoma Kristniboðsflokks KFUK PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Þriðjudagur, 15 Maí 2012 13:07

alt

Kristniboðsflokkur KFUK, sem nú er rúmlega 70 ára, heldur árlega fjáröflunarsamkomu í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, miðvikudaginn 16. maí kl. 20. Á dagskrá er tónlist og söngur í umsjá Sálmavinafélagsins, hugleiðing sem Halldóra Lára Ásgeirsdóttir flytur og happdrætti. Að lokinni samkomu selja konurnar kökur og tertur sem þær baka af þessu tilefni - en allar eru þær með áratugareynslu á því sviði - og selja til fjáröflunar fyrir starfið en allt sem inn rennur fer til kristniboðsins. Allir eru hjartanlega velkomnir.

 
Kveðja frá Japan PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Þriðjudagur, 15 Maí 2012 13:02

Leifur og fjölskyldaKatsuko og Leifur Sigurðsson kristniboði senda kveðju frá Fukuyama í Japan. Þau fluttu fyrir nokkrum vikum og Leifur hefur tekið þar við starfi prests í söfnuði lúthersku kirkjunnar í borginni. Starfið er krefjandi bæði vegna tungumálsins sem er mjög erfitt og venjur og siðir frábrugðin því sem Leifur á að venjast fra Íslandi og Keníu.

Þau biðja um fyrirbæn fyrir börnunum sínum að þau aðlagist nýjum aðstæðum fljótt og vel, fyrir samverkafólki þeirra og söfnuðinum í Fukuyama, einkum einum samverkamanni sem reynist erfiður í samstarfi. Eins biðja þau um betri lausn í húsnæðismálum en mjög hljóðbært er milli íbúðar og safnaðarsalarins í kirkjunni þar sem þau búa. 

Biðum þess að þau verði til blessunar og hvatningar.

 

Síðast uppfært Þriðjudagur, 15 Maí 2012 13:13
 
Útvarpskristniboð - 1. hluti PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Þriðjudagur, 15 Maí 2012 11:07

Kristniboðssambandið er styrktaraðili norska útvarpskristniboðsins Norea. „Konur vonarinnar" er vikulegur þáttur sem sendur er út á 60 tungumálum. Hann er sniðinn að þörfum kvenna, boðar fagnaðarerindið, veitir andlega leiðsögn og tekur fyrir ýmis mál sem tengjast heilsu og barnauppeldi. Fjöldi kvenna í heiminum stríðir við fátækt og á í daglegri baráttu við að sjá sér og börnum sínum farborða. Konur eru 2/3 af þeim sem eru ólæsir í heiminum. Árlega eru milljónir kvenna neyddar í kynlífsþrælkun og árlega eiga þrjár milljónir á hættu að verða umskornar. Fjórða hver kona býr við ofbeldi á heimili sínu og oft er litið á þær sem annars flokks. Hér er saga einnar þessara kvenna.

 

Ég heiti Mara

Þetta er sagan mín

Ég var þrettán ára afrísk mömmustelpa. Ég lék mér við bræður mína og hafði dálæti af að sitja hjá mömmu og hlusta á sögurnar hennar. Lífið var gott. En á einni nóttu breyttist allt...

Síðast uppfært Þriðjudagur, 15 Maí 2012 11:32
Meira...
 
Aðalfundur á laugardag PDF Prenta Senda
Höfundur: Ragnar Gunnarsson   
Þriðjudagur, 08 Maí 2012 16:25

Ársskýrsla SÍKAðalfundur Sambands íslenskra kristniboðsfélaga verður haldinn laugardaginn 12. maí kl. 11 og hefst með hugleiðingu Sigríðar Hrannar Sigurðardóttur, hjúkrunar- og guðfræðings. Síðan verður gengið til aðalfundarstarfa. Eftir kosningu fundarstjóra og fundarritara verður gefið yfirlit yfir skýrslu stjórnar, síðan eru skýrslur aðildarfélaga og reikningar liðins árs lagðir fram og ræddir. Framkvæmdastjóri mun fjalla um tjaldgjörðarkristniboð og þátt SÍK í því. Kosið verður í stjórn og varastjórn, skoðunarmenn reikninga valdir og árgjald ákveðið. Loks eru á dagskrá önnur mál sem á fólki brenna og snerta starf og stefnu samtakanna. Fundurinn er öllum opinn, en atkvæðisrétt hafa löggildir félagsmenn einir. 

 

Ársskýrsla Sambands íslenskra kristniboðsfélaga

Síðast uppfært Þriðjudagur, 08 Maí 2012 16:31
 
Samkoma í kvöld 2. maí PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Miðvikudagur, 02 Maí 2012 13:19

KristniboðssalurinnÍ kvöld, miðvikudaginn 2. maí kl. 20:00 er samkoma í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.

 

 

Efni samkomu: 1. Pét.1:1-2. Útvalning og helgun.
Ræðumaður: Birna Gerður Jónsdóttir.
Annað efni: Fréttir frá Eþíópíu.

 

Kaffi og veitingar eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir.

Síðast uppfært Fimmtudagur, 03 Maí 2012 11:57
 
Kaffisala 1. maí PDF Prenta Senda
Höfundur: Hermann Ingi Ragnarsson   
Föstudagur, 27 Apríl 2012 11:12

KaffisalaHin árlega kaffisala Kristniboðsfélags kvenna verður haldin þriðjudaginn 1. maí í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60, kl 14.-17.

 

Allur ágóði af kaffisölunni rennur til Kristniboðssambandsins.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Síðast uppfært Miðvikudagur, 02 Maí 2012 13:19
Meira...
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 1 af 36

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

Póstlisti SÍK

Fylltu út þessa reiti til að gerast áskrifandi að Kristniboðspóstinum.









Hafa samband
Senda inn bænarefni