|
Höfundur: Ragnar Gunnarsson
|
|
Föstudagur, 03 Febrúar 2012 11:43 |
|
Hjónin og kristniboðarnir Ragnar Gunnarsson og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir hafa undanfarnar vikur kennt á námskeiði fyrir prédikara í Lúthersku kirkjunni í Pókot í Keníu. Allir sinna þeir starfi sínu sem sjálfboðaliðar. Forsendur þeirra og bakgrunnur er misjafn. Sumir koma úr næsta nágrenni aðrir mörg hundruð kílómetra leið. Þeir eiga þó eitt sameiginlegt: Áhugann á náminu. Hann endurspeglast m.a. í spurningum um boðskap Biblíunnar, kirkjuskipulagið, starfið almennt, trúarlífið, gildi bænarinnar og fleira.
Ein vika er eftir af þessum áfanga sem er sá sjötti af átta fimm vikna áföngum áður en þeir úrskrifast eftir ár. |